Varnarmálastofnun og loftrýmiseftirlit.
Virðulegi forseti. Ég er ekki í vondum málum eins og hv. þingmaður segir. Hæstv. utanríkisráðherra ætti að kynna sér betur ræður mínar á þingi um þessi mál. Það hefur nefnilega reglulega komið fram í ræðum mínum úr þessum ræðustól að ég tel að Varnarmálastofnun ætti að vera rekin með allt öðrum hætti og ég tel loftrýmiseftirlitið algjöran óþarfa. (Gripið fram í.) Ég hef setið hér undir húrrahrópum vinstri grænna fram að þessu og reyndar ekki liðið vel með það. [Hlátur í þingsal.]
En það hafa greinilega orðið sinnaskipti í þessari ríkisstjórn enn og aftur og þau sýnast mér vera hjá vinstri grænum. Enn og aftur gefa þeir eftir. Ég vil vitna í hæstv. fjármálaráðherra, með leyfi forseta:
„Hvað á það að þýða að setja á annan milljarð króna í Varnarmálastofnun suður við Keflavíkurflugvöll? Nýtt batterí sem snýst aðallega um að undirbúa og halda heræfingar.“
En þetta hefur hann nú selt sig undir og þeir hv. þingmenn Vinstri grænna (Forseti hringir.) og þau í ríkisstjórn. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Mikilvægt er að hér verði stöðugleiki í þeim ólgusjó en fyrstu spor ríkisstjórnarinnar í þeim efnum hræða.