136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

heilbrigðismál.

[10:39]
Horfa

Ásta Möller (S):

Virðulegi forseti. Ég vil héðan úr ræðustól Alþingis óska nýkjörnum formanni heilbrigðisnefndar, Þuríði Backman, til hamingju með kjörið. Við eigum nú í miklum erfiðleikum eins og öllum er kunnugt og því ákveðnar sem tekið er á með sparnaði og hagræðingu í opinberri þjónustu því fyrr munum við ná okkur upp úr þessari kreppu sem við stöndum núna frammi fyrir. Það eru eindregin ráð sérfræðinga sem vilja ráða okkur heilt.

Fyrstu yfirlýsingar ráðherra Vinstri grænna í ríkisstjórn benda til þess að þeir séu við sama heygarðshornið og leggja til aukin útgjöld ríkisins í stað þess að fylgja ákvörðun fjárlaga um samdrátt í ríkisútgjöldum. Þar nefni ég m.a. niðurfellingu innritunargjalda á sjúkrahús sem nema um 100 millj. kr. og vilja nýs menntamálaráðherra varðandi breytta útborgun námslána sem munu kosta ríkissjóð marga milljarða kr. svo ekki séu nefndir 13 milljarðar kr. til að ljúka byggingu tónlistarhússins eins og vilji hennar stendur til.

Ekki er á það bætandi að hæstv. sjávarútvegsráðherra er tilbúinn að slá hendinni á móti 5 milljarða tekjum og hátt í 300 störfum með því að fella úr gildi reglugerð um hvalveiðar. Heilbrigðisþjónustan stendur núna frammi fyrir því að draga saman í 7 milljarða kr. samkvæmt ákvörðun meiri hluta á Alþingi í fjárlögum.

Ég spyr því hv. þingmann, nýkjörinn formann heilbrigðisnefndar Alþingis: Munu þingmenn og mun VG í ríkisstjórn fylgja eftir fjárlögum 2009 eða munu þeir fylgja eftir tillögum sínum um stóraukin útgjöld eins og kom fram í breytingartillögum þeirra í umræðum um frumvarp til fjárlaga árið 2009? Mun hæstv. heilbrigðisráðherra styðja tillögur stjórnenda sjúkrahússins á Akureyri um 300 millj. kr. hagræðingu í rekstri sem þegar liggur á borðinu eða mun VG halda sig við tillögur sínar um stóraukin útgjöld til opinberrar þjónustu sem mun geta lengt þrengingar þjóðarinnar um mörg ár? Ætla þingmenn Vinstri grænna ekki að læra það að þeir eru ekki lengur í stjórnarandstöðu? (Forseti hringir.) Þeir eru komnir í stjórn.