136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

heilbrigðismál -- stefna í virkjunarmálum.

[10:53]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Herra forseti. (Gripið fram í: Nú kemur það.) Stefna Vinstri grænna er alveg skýr. (Gripið fram í.) Við erum þeirrar skoðunar að bæði orkuauðlindir og allar stærri virkjanir eigi að vera í samfélagseigu. Það er grundvallarhugsjón okkar. Þetta er hluti af þeim samfélagslega auði sem við eigum og nýtum saman til að efla atvinnulífið í landinu.

Mjög dapurlegt er að verða vitni að þeirri ógnarstöðu sem 18 ára ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur sett okkur í. Þær miklu skuldir (Gripið fram í.) sem þjóðarbúið stendur frammi fyrir og Sjálfstæðisflokkurinn hefur með einkavæðingarstefnu sinni látið þjóðina rata í. Að einstaka mönnum skuli þá detta í hug að selja virkjanir til þess að koma upp í þann — (Gripið fram í.) ég minni á af því að hér er gripið fram í að yfirleitt hefur mikið áhugamál sjálfstæðismanna verið að einkavæða og selja. Bankarnir voru einkavæddir og seldir með þeim glæsilega árangri (Gripið fram í.) sem raun ber vitni. (Gripið fram í: Starfar iðnaðarráðherra ekki með forustu Vinstri grænna?) En hins vegar er ljóst að auðvitað ræður vilji Alþingis í þessum efnum.

Stefna Vinstri grænna er alveg skýr. Orkuauðlindir og stærri virkjanir eiga að vera í samfélagseigu. Ég veit ekki betur en að á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar sé einmitt að leggja fram tillögu og reyna að tryggja að í stjórnarskrá verði staðfest óumdeilanlega að auðlindir séu þjóðareign. (Gripið fram í.) En það hefur staðið í sjálfstæðismönnum undanfarin ár því þeir vilja jú (Gripið fram í.) einkavæða allt. Virkjanir og auðlindir þjóðarinnar skulu (Forseti hringir.) vera í þjóðareign.