136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

heilbrigðismál -- stefna í virkjunarmálum.

[10:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er mjög athyglisvert að hlusta á stjórnarliða og þá sem styðja stjórnina tala hér. Það eina sem þeir geta talað um er Sjálfstæðisflokkurinn. (Gripið fram í.) Hv. þm. Jón Bjarnason kallar fram í að við höfum verið við völd í 18 ár (JBjarn: Og sett landið á hausinn.) og það gerir að verkum að hann á mjög erfitt með að tala út frá því hvað þessi ríkisstjórn vill. (JBjarn: Sett landið á hausinn.) Mjög athyglisvert er að ríkisstjórnin er nokkurra daga gömul og það er mjög erfitt fyrir okkur að vera í stjórnarandstöðu vegna þess að hún er ósammála um svo mörg mál. Mjög gott væri ef við gætum takmarkað þetta yfir vikuna þannig að við gætum tekið svona eitt, tvö mál á viku.

Hins vegar liggur alveg hreint og klárt fyrir (Gripið fram í.) að hér er enn einn — (Gripið fram í.) virðulegi forseti, þeir eiga einhverra hluta vegna erfitt með að leyfa mér að halda ræðuna. Hér tala menn út og suður í hverju einasta máli. Virðulegi forseti. Þeir byrjuðu á mánudaginn. (Gripið fram í.) Í dag er föstudagur. Það liggur fyrir að hér er ekki verið að ræða neinar tillögur, virðulegi forseti. Ég held að það þurfi að hafa stjórn á þessum hópi hérna.

En það liggur fyrir að ríkisstjórnin er klofin þegar kemur að þessu máli. Ástæðan fyrir því að hv. þm. Birgir Ármannsson kom hér upp er að hann vísaði til viðtals við hæstv. iðnaðarráðherra. Í kjölfarið kom hv. þm. Jón Bjarnason (Gripið fram í.) sem talar þvert gegn ráðherra í eigin ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Þannig er það bara. Hann talar þvert gegn ráðherra í eigin ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Ljóst er að hæstv. iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson vill selja útlendingum virkjanir, eins og kom fram í fréttinni, og hér kom hv. þm. Jón Bjarnason og talaði þvert gegn því.

Ég hef ekki hugmynd um hvaða skoðun Framsóknarflokkurinn hefur á þessu máli eftir að hafa hlustað á hv. þm. Eygló Harðardóttur en það sem er algerlega (Forseti hringir.) ljóst, virðulegi forseti, er að hér tala menn út og suður (Forseti hringir.) í öllum málum í ríkisstjórninni og þetta er dagur fimm. (Forseti hringir.)