136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[11:17]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt að upplýsa að fyrir árið 2001 var auglýst eftir stöðu í embætti seðlabankastjóra og það var þverpólitísk sátt um að afnema það á sínum tíma. Það voru því allir flokkar hér á þingi sammála þeirri breytingu á sínum tíma og skoðun hæstv. forsætisráðherra var sú að bankaráðið ætti eftir sem áður að skipa bankastjóra. Þetta er breytt og að mörgu leyti skil ég það því ég tel að forsætisráðherra eigi að skipa seðlabankastjóra.

Varðandi faglega atriðið, en það kom a.m.k. kosti sex eða sjö sinnum fram í ræðu hæstv. forsætisráðherra, þ.e. faglegt mat, þá get ég tek undir að við þurfum að fara mjög vel yfir það hvernig á að skipa seðlabankastjóra. Vegna þess að mjög mikið hefur verið kallað eftir áliti erlendra sérfræðinga þá vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ekki sé rétt að við leitum eftir áliti erlendra sérfræðinga á þessu máli, til þess að skapa traust og til að fyrirbyggja alla tortryggni og til þess að fara vel yfir þetta mál.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er ekki eðlilegt að erlendir sérfræðingar (Forseti hringir.) meti hvort þetta sé rétta leiðin?