136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[11:20]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ræða hæstv. forsætisráðherra og greinargerð með frumvarpinu sem hér liggur fyrir vekur í mínum huga fleiri spurningar en hún svarar. Eitt atriði, sem má kannski segja að sé í framhaldi af þeirri umræðu sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir átti við hæstv. forsætisráðherra, fjallar um undirbúning málsins. Hvorki í frumvarpinu sjálfu né í ræðu hæstv. forsætisráðherra kom neitt fram um undirbúning málsins og því leikur mér veruleg forvitni á að vita hvernig faglegum undirbúningi að samningu frumvarpsins var háttað. Til hvaða sérfræðinga var leitað? Var um að ræða niðurstöður einhverrar faglegrar greiningar? Fór fram samanburður á löggjöf hér á landi og í nágrannalöndunum? Var leitað fyrirmynda í nágrannalöndunum með einhverjum skýrum og skilgreindum hætti? Og ef svo var hvers vegna er ekki getið um það í greinargerð með frumvarpinu og hvers vegna var ekki getið um það í ræðu hæstv. forsætisráðherra?

Ég verð að minna á að þegar við höfum verið að fjalla um löggjöf um Seðlabanka Íslands hér í þinginu á undanförnum árum þá hafa frumvörp jafnan byggst á faglegu mati og jafnan byggst á pólitískri samstöðu. En svo virðist ekki vera í þessu tilviki. Það væri því mikill ávinningur ef forsætisráðherra gæti upplýst okkur um það til hvaða fyrirmynda var litið þegar frumvarp þetta var samið og hvort fram fór samanburður á mismunandi leiðum sem eru farnar í sambandi við stjórnsýslu seðlabanka í mismunandi löndum. Því að við vitum að þótt peningastefnunefndir séu víða eru þær útfærðar með mjög mismunandi hætti í mismunandi löndum. Sums staðar er seðlabankastjóri einn (Forseti hringir.) sums staðar eru þeir margir. Hvaða mat réð því að þessi leið var valin?