Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Það var vingjarnlegt og virðingarvert af hæstv. forsætisráðherra á dögunum að kynna yfirstjórn Seðlabankans þá framkomnu hugmynd að breyta lögum um Seðlabanka Íslands. Lögin fela það í sér að ráðinn verði einn seðlabankastjóri á faglegum forsendum og því var það eðlileg og vönduð ráðstöfun af hæstv. forsætisráðherra að kynna það þeim sem málið snýr hjá Seðlabankanum áður en málið kom opinberlega fram.
En hitt er að segja að það er algjört grundvallaratriði til að vinna Ísland út úr þeim efnahagslegu neyðaraðstæðum sem við erum stödd í enn þá og sköpuðust hér í haust. Við settum þrenn neyðarlög. Við gerðum samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og breyttum fjárlögum 22. desember, allt til að skapa forsendur fyrir því að koma okkur út úr neyðaraðstæðunum.
Það sem við okkur blasir núna og er algjört lykilatriði til að koma okkur áfram og upp úr þeim dal sem við erum stödd í er að endurheimta traust á lykilstofnunum í samfélaginu, á Fjármálaeftirlitinu, Seðlabankanum og öðrum þeim stofnunum sem koma að eftirliti og utanumhaldi um efnahagslegan stöðugleika í landinu. Það mistókst okkur algerlega að gera í fyrra og það liggur í brunarústum eftir bankafallið í haust.
Hæstv. viðskiptaráðherra skipaði nýja yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins í gær og það liggur fyrir að við verðum að endurskoða fyrirkomulag þessara stofnana með öllum tiltækum ráðum af því að nú eru dýrir dagar. Það ræður úrslitum um lánskjör Íslendinga, aðgengi okkar að lánsfé í útlöndum og alla uppbyggingu á trausti innan lands og utan hvernig við finnum þessum málum stað. Þetta snýr ekki að persónum. Þetta snýr að því að endurreisa traust á lykilstofnunum í samfélaginu. Þess vegna spyr ég hv. þm. Birgi Ármannsson: Ef hann vill ekki fara þessa leið, hvaða leið leggur hann þá til?