136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[12:02]
Horfa

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við hv. þm. Birgir Ármannsson erum sammála um gildi faglegra vinnubragða, það er gott. Hæstv. forsætisráðherra lýsti því í ræðu sinni, og það á örugglega eftir að koma fram hér í umræðum síðar í dag um þetta mál, að undirbúningur þessa máls var byggður á faglegum grunni. (REÁ: Hvaða faglegum grunni?) Hann var byggður á faglegum grunni sem ráðherra gerði grein fyrir áðan og ég á von á því að sá faglegi grunnur skýrist frekar í dag.

Aðalatriði málsins núna finnst mér vera að byggja upp traust og trúverðugleika á peningamálastefnunni og á því hvernig á málum er haldið í Seðlabanka Íslands. Því vilja sjálfstæðismenn ekki átta sig á dag. Þetta snýst ekki um persónur og leikendur og þetta snýst ekki um Davíð Oddsson seðlabankastjóra eins og ýmsir sjálfstæðismenn vilja vera láta. Þetta snýst um traust og trúverðugleika, ekki bara inn á við heldur ekki síður út á við. Ég minni á það og það er mín skoðun að hv. seðlabankastjóri Davíð Oddsson hafi skaðað orðspor og ímynd Íslendinga í (Forseti hringir.) peningamálum á erlendum vettvangi svo um munar.