Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég andmæli því að það sé fyrirstaða af hálfu sjálfstæðismanna við það að endurskoða lög um Seðlabanka Íslands. Sú skoðun Sjálfstæðisflokksins kom skýrt fram í vetur að ástæða væri til að líta til endurskoðunar á eftirlitskerfinu öllu og litu menn þá sérstaklega til þess að Fjármálaeftirlitið yrði haft með í þeirri endurskoðun.
Margir eru á þeirri skoðun að það rof sem varð með því að bankaeftirlitið var fjarlægt úr Seðlabankanum hafi haft með það að gera að Fjármálaeftirlitið hafði ekki þau tök sem það hefði þurft að hafa jafnvel á bankakerfinu núna. Þannig að ég andmæli því mjög að Sjálfstæðisflokkurinn sé einhver flækjufótur í þessu.
Þegar um er að ræða löggjöf um Seðlabanka Íslands, og menn verða að gera sér grein fyrir mikilvægi bankans í öllu okkar efnahagslífi, hljóta menn að reyna að ná einhverju samkomulagi um það við aðra flokka, og þótt málið sé brýnt þá er ekkert mál svo brýnt að menn vandi sig ekki.