136. löggjafarþing — 76. fundur,  6. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[15:22]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Leitt er ef hv. þingmanni sárnar að ég skuli rekja augljósa ágalla í framgöngu seðlabankastjórnarinnar á undanförnum missirum. Ég tel mig hafa til þess fulla heimild óháð því hvort rannsóknarnefnd er í gangi eða ekki og finnst fullkomlega eðlilegt að þeir ágallar séu ræddir enda hluti af almennri umræðu í landinu og hljóta að vera til skoðunar þegar horft er til hvort núverandi stjórnkerfi Seðlabanka Íslands hefur leitt til góðs árangurs eða ekki.

Ég tel varðandi aðra spurningu hv. þingmanns að frumvarpið byggi á faglega sterkum grunni. Ég þekki engan hagfræðing í landinu sem kýs núverandi stjórnskipulag Seðlabankans fram yfir það stjórnskipulag sem lagt er til í frumvarpinu. Ég tel að það byggi á mjög traustum grunni og tryggi faglegt sjálfstæði Seðlabanka Íslands (Forseti hringir.) sem átakanlega hefur skort á (Forseti hringir.) á undanförnum missirum og (Forseti hringir.) árum.