136. löggjafarþing — 77. fundur,  9. feb. 2009.

úrsögn úr þingflokki.

[15:03]
Horfa

Jón Magnússon (Fl):

Virðulegi forseti. Ég hef í dag tilkynnt þingflokki Frjálslynda flokksins að ég segi mig úr þingflokknum og hef sagt mig úr Frjálslynda flokknum. Jafnframt hef ég í framhaldi af því afhent hæstv. forseta Alþingis eftirfarandi bréf:

„Ég undirritaður þingmaður hef sagt mig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og mun því starfa áfram á Alþingi sem þingmaður utan flokka.“