136. löggjafarþing — 77. fundur,  9. feb. 2009.

breytingar á bankaráðum viðskiptabankanna.

[15:04]
Horfa

Geir H. Haarde (S):

Herra forseti. Ég tek til máls í fyrsta sinn sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Alþingi og vil leyfa mér að óska hæstv. forsætisráðherra og ráðherrunum öllum heilla í mikilvægum störfum. Það er mjög mikilvægt að vel takist til um stjórn landsins og gott samstarf sé á Alþingi milli stjórnmálaflokkanna.

Ég hef tekið eftir því þar sem ég hef fylgst með úr fjarlægð að það er ögn breyttur svipur á þinginu frá því fyrir tveimur vikum þegar ég talaði hér síðast. Hæstv. núv. fjármálaráðherra er t.d. farinn að tala vel um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. [Hlátur í þingsal.] Hæstv. núv. heilbrigðisráðherra er stilltur og prúður í sínu sæti [Hlátur í þingsal.] og í ræðustól og hættur að hrópa og öskra á samþingsmenn sína hér í salnum. Vonandi veit þetta allt á gott.

Ég hef spurningu fram að færa við hæstv. forsætisráðherra sem lýtur að viðskiptabönkunum, sérstaklega að bankaráðunum. Eins og við munum náðist hér sátt milli allra stjórnmálaflokka fyrr í haust um skipan einstaklinga í bankaráðin. Sú sátt byggðist að vísu á því að stjórnarandstaðan þáverandi, sérstaklega Vinstri hreyfingin – grænt framboð, fékk fleiri fulltrúa í bankaráðin en hún hafði þingstyrk til. Eigi að síður tel ég að það hafi tekist afar vel með skipan einstaklinga í bankaráðin og þeir hafi unnið störf sín af mikilli og stakri prýði frá því í haust við að koma málum bankanna á réttan kjöl og leysa úr vanda þeirra og þeirra viðskiptamanna. Því ber að fagna. Þess vegna olli mér vonbrigðum það sem kom frá hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra um afskipti þeirra og yfirlýsingar varðandi bankaráð Landsbankans og tímabundna ráðningu Ásmundar Stefánssonar í starf bankastjóra Landsbankans.

Ég spyr: Stendur til að gera breytingar á bankaráðunum í viðskiptabönkunum þremur? Á að þola þessu fólki, eða eins og stjórnarliðarnir kalla það, að hreinsa út úr bankaráðum viðskiptabankanna þriggja á næstunni? Hvað stendur til að gera varðandi þennan ágæta hóp af fólki?