136. löggjafarþing — 77. fundur,  9. feb. 2009.

frumvarp um Seðlabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.

[15:16]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Í svari við fyrirspurn sem kom fram áðan vék hæstv. forsætisráðherra örlítið að lagabreytingum sem lagðar hafa verið til varðandi Seðlabanka Íslands. Af því tilefni og vegna umræðu sem átti sér stað á föstudaginn vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort henni eða ríkisstjórninni hafi borist formlegt eða óformlegt erindi eða umsögn eða einhvers konar athugasemdir frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna seðlabankafrumvarpsins og ef svo er, hvers efnis þær eru.