áform um skattahækkanir.
Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir að þingheimur viti að hér þarf að fara í verulegan niðurskurð alveg eins og gert er á þessu ári og þarf að gera á næstu árum. Við erum í þeirri stöðu að kaupmátturinn mun lækka. En ásetningur ríkisstjórnarinnar er að verja kjör fólks með lágar og meðaltekjur og við það munum við standa.
Ég man ekki betur en að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í síðustu ríkisstjórn hafi alls ekki útilokað að til skattahækkunar gæti komið á miðju þessu ári þegar ríkisfjármálin yrðu endurskoðuð. Ég man ekki betur.
En ég get fullvissað fólkið í landinu um að við munum fyrst og fremst verja það að skattahækkanir bitni á fólki með lágar og meðaltekjur. Sjálfstæðisflokkurinn setti alla skattbyrðina á fólk með lágar og meðaltekjur en hlífði auðmönnunum í landinu. Það munum við ekki gera. Það skal ég fullvissa hv. þingmann um.