hvalveiðar.
Virðulegur forseti. Við framsóknarmenn viljum taka málefnalega afstöðu til þessa máls. Við viljum sjálfbæra nýtingu á náttúruauðlindunum. Í fyrsta lagi er hvalurinn hluti af okkar menningu. Veiðarnar eru hluti af okkar menningu. Við höfum veitt hval hér frá örófi alda. Það þýðir ekkert að líta á þetta mál af einhverri tilfinningasemi. Hvað er öðruvísi við það að veiða hval en að veiða eitthvert annað dýr? Maður sér ekki stóran mun á því.
Það þýðir heldur ekki að hlaupa eftir þeim sem alhæfa. Erlendir aðilar hafa alhæft að hvalir séu í útrýmingarhættu. Það er ekki rétt, ekki hér í kringum Ísland. Líklega eru 50–70 þús. hrefnur í Norður-Atlantshafinu í kringum Ísland og líklega um 50 þús. langreyðar þannig að það er hægt að nýta þessa stofna með sjálfbærum hætti.
Og staða Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Eigum við bara að leggjast niður af því að hvalir eru í útrýmingarhættu annars staðar? Nei, virðulegur forseti.
Þorskurinn er í útrýmingarhættu í Eystrasaltinu. Hvað ef umhverfisverndarsamtökum dettur nú í hug að tala um þorskinn næst? Eigum við þá bara að segja: Já, þetta er nú svo erfitt á alþjóðavettvangi. Það er nú best að hætta þessum þorskveiðum.
Nei, virðulegur forseti. Við eigum auðvitað að nýta okkar auðlindir á sjálfbæran hátt. Og að hlusta hér á hæstv. sjávarútvegsráðherra halda ræðu og segja eitthvað á þessa leið: „Jarití, jarití, jarí.“ Hann fann ekki einhver minnisblöð í ráðuneytinu og skilur ekkert af hverju þarf að afgreiða þetta núna hratt og vel. „Prinsippmaðurinn“ vill nú velta þessu máli lengi fyrir sér. Það er ekkert sem bendir til þess að ferðaþjónustan tapi á hvalveiðunum. Því hlýt ég að spyrja, virðulegur forseti: Hvað ætlar hæstv. ráðherra að hafa málið lengi í óvissu? (Forseti hringir.) Hann hlýtur að upplýsa í lok umræðna hvað óvissan á að vera lengi (Forseti hringir.) af því ef hún á að vera lengi verður þingið að taka þetta mál í sínar hendur og segja ráðherranum hvað þingið vill.