stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Þetta frumvarp gengur út á það að opna fyrir frjálsar handfæraveiðar á bátum undir 30 tonnum. Það er ekki neglt niður nákvæmlega hvernig útfærslan á þessu yrði en skipin þurfa auðvitað að hafa haffærisskírteini og þau þurfa að hafa réttindamenn bæði í vél og brú til að uppfylla skilyrði. Þau þurfa að hafa haffærisskírteini og vera með sjálfvirka tilkynningarskyldu þannig að þau uppfylli það sem farið er fram á við skip almennt á Íslandsmiðum.
Ég sakna þess að sjá ekki hér fleiri nefndarmenn úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og ég sakna þess líka að sjá ekki nýkjörinn formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Þetta er auðvitað mál sem gæti orðið fyrsta skrefið til þess að virða mannréttindi og fara að tilmælum mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Ég geri mér þær vonir enn þá og ég trúi ekki öðru en að vinstri grænir muni beita sér fyrir því og nýta þessa 70 daga sem þeir hafa til að virða þessi mannréttindi. Ég ætla ekki að trúa því fyrr en ég tek á því að vinstri grænir bregðist fólkinu í landinu og sjómönnum með þeim hætti að humma þetta fram af sér á meðan þeir eru í ríkisstjórn.
Við erum að tala um uppstokkun á gjafakvótakerfinu og eins og allir vita hef ég lengi talað gegn þessu gjafakvótakerfi. Það hefur ekki gert okkur íslensku þjóðinni nokkurn skapaðan hlut annan en allt til bölvunar. Ég hef stundum kallað þetta gjafakvótakerfi mesta ríkisstyrk til einnar atvinnugreinar og þá er ég að tala um að engin atvinnugrein sem ég veit um á byggðu bóli komst upp með það að veðsetja veiðiheimildir á Íslandsmiðum fyrir allt að þúsund milljarða. Verðmæti gjafakvótans voru þúsund milljarðar fyrir einu ári. Þeir gátu leigt, veðsett og selt veiðiheimildir og margir ágætir menn hafa bent á það að upphafið að aðalógæfu okkar á haustdögum þegar bankakerfið féll hafi verið þetta bannsetta kvótakerfi. Samt horfir maður upp á það að vissir menn treysta sér til að verja það með ýmsum hætti.
Að hleypa nokkrum trillum — eða ekki nokkrum, við skulum bara vona að þær verði sem flestar — inn í einhvern ákveðinn pott upp á kannski 10 þús. tonn sem mundi fríska töluvert upp á atvinnulífið í sjávarbyggðum hringinn í kringum landið, skapa gjaldeyristekjur og atvinnu er auðvitað það sem við þurfum á að halda núna. Við þurfum ekki bara á því að halda, við þurfum að bæta verulega við kvóta í flestum tegundum til þess að auka verðmæti og atvinnu og afla gjaldeyristekna.
Á haustdögum gerðum við að mínu mati mjög slæma hluti þegar Alþingi samþykkti að leyfa mönnum að geyma, ekki bara 20% af kvótum milli ára heldur 33%. Það þýðir að miðað við 160 þús. tonna úthlutun í þorski má núna geyma á milli ára 53 þús. tonn sem auðvitað mundi þýða að allt að þúsund störf töpuðust ef þetta væri allt saman geymt á milli ára. Talað er um að auka við kvótann en svo er hægt að geyma hann allan og þjóðin nýtur þá ekki góðs af honum. Það eru tegundir í kvóta eins og rækja sem enginn getur gert út á í dag af því að einhverjir sægreifar eiga rækjukvótann og vilja fá svo og svo margar krónur fyrir hvert kíló sem þeir leigja frá sér. Hann brennur inni ár eftir ár og hefur ekki verið nýttur en gæti skapað mörg störf í rækjuvinnslum sem enn eru til en eru lokaðar þar sem ekki er verið að vinna í nema sárafáum. Þess vegna segi ég að við þurfum að auka við kvótann og við þurfum að stokka upp sjávarútvegskerfið í heild sinni. Þetta yrði fyrsta skrefið til að opna á nýliðun og gefa fólki tækifæri til að eiga aðgang að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, fiskinum í sjónum.
Auðvitað má segja að það sé hægt að búa til þak í þetta í tonnum talið. Við erum að horfa upp á það á Suðurnesjum núna að flotinn er meira og minna stopp sem þarf að leigja til sín þorsk. Þeir eiga jafnvel ufsakvóta og þeir eiga ýsukvóta en þeir geta ekki róið vegna þess að þá vantar þorskkvóta. Leiguverðið á þorski í dag er 200 kr. hvert kíló en söluverð á fiskmörkuðum er ekki nema 210–215 kr., þ.e. þegar búið er að borga leiguna eru 10–15 krónur eftir og þær fara í uppboðskostnað á fiskmörkuðum hjá þeim sem landa á fiskmörkuðum.
Það var ánægjulegt að heyra hæstv. sjávarútvegsráðherra tala um það hér áðan að hann væri hlynntur veiðum smábáta. Auðvitað verður maður bjartsýnn þegar maður heyrir hæstv. ráðherra tala þannig en ég get ekki orða bundist með það að hæstv. núverandi sjávarútvegsráðherra tók þátt í því 1990 að greiða atkvæði með frjálsa framsalinu. Hæstv. sjávarútvegsráðherra innleiddi kvótabraskið í atkvæðagreiðslu á Alþingi 1990 og það tók gildi árið 1991. Hann ber pólitíska ábyrgð á því braskkerfi sem hefur verið hér við lýði og auðvitað óttast maður að hann, sá ágæti hæstv. ráðherra, sé kannski ekki eins mikið á móti þessu fiskveiðistjórnarkerfi og hann vill stundum vera láta. Ég minnist þess líka að frá 1991 til 1995 var hæstv. sjávarútvegsráðherra í minni hluta en leiddi nefnd, var þá formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis.
Það er að mínu mati mjög nauðsynlegt að endurskoða allt fiskveiðistjórnarkerfið okkar og það á að vera verkefni þessarar ríkisstjórnar að fara í það mál að byrja að opna á glufur fyrir nýliðun til þess að virða mannréttindi. Það er ekki til of mikils ætlast að það verði gert. Þrátt fyrir að ég bendi á að núverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra hafi tekið þátt í að koma frjálsa framsalinu á trúi ég ekki öðru en að hans liðsmenn, flokkssystkini hans, sjái um það að Vinstri grænir virði þetta og stígi ákveðin spor í rétta átt til að virða mannréttindi. Ég mun aldrei trúa öðru fyrr en ég tek á því að þau ætli að láta þetta afskiptalaust fram yfir kosningar.
Þegar verið er að ræða sjávarútvegsmál er auðvitað hægt að fara í gegnum þau á margan hátt. Varðandi leigu á veiðiheimildum er, eins og ég benti á í andsvörum við hæstv. sjávarútvegsráðherra, hægt að leigja út veiðiheimildir með því að skipta þeim á landshluta og á bátastærðir þannig að enginn verði afskiptur. Það er hægt að tryggja það með þeim hætti að þeir borgi aðgang að veiðiheimildum, borgi leiguna á veiðiheimildunum um leið og þeir nýta þær, hvort sem það eru dagar, tonn eða kíló.
Ef frumvarpið yrði að lögum væri líka hægt að setja það sem kvöð að þessi fiskur færi ekki í gáma, hann færi allur á íslenska fiskmarkaði, yrði seldur þar fyrir íslenska fiskvinnslu, íslensk fiskvinnsla hefði aðgang að þessu hráefni. Það er hægt að setja viku til 10 daga stopp í kringum verslunarmannahelgi, það er hægt að hafa 4–5 daga stopp í kringum sjómannasunnudag, jafnvel 17. júní og ýmislegt annað. Það er ýmislegt hægt að gera ef menn vilja en fyrst er að vilja gera einhverjar breytingar, stíga einhver hænufet í rétta átt hvað þessi mál varðar og þá er hægt að byrja á því að brjóta ísinn. Það er það sem við þurfum að gera. Hvort LÍÚ sé sátt við svona gjörðir hélt ég að íslenskir sósíalistar létu sig engu varða, hvort einhverjir sem hafa verið með auðlindina síðustu 20 ár eða meira (Gripið fram í.) og braskað með hana, leigt, selt og veðsett óttist virkilega að kalla yfir sig reiði frá íslenskum útgerðarmönnum, hvort sem þeir eru í LÍÚ eða Landssambandi smábátaeigenda. Það er ótrúlegt, en það getur vel verið að það ráði einhverju. Á hæstv. sjávarútvegsráðherra var að heyra sem hann væri eitthvað smeykur við LÍÚ.
Ég vona að hann komist út úr því og ég trúi því og vona að einhver skref verði stigin í rétta átt í þessu, enn og aftur segi ég það og trúi ekki öðru en að þetta frumvarp sem fer væntanlega til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar fái góðan framgang þar og við getum afgreitt frumvarpið á þessu þingi áður en við förum í kosningar.