stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég legg áherslu á að ég vil alls ekki gera lítið úr því að bændur græði landið og sjómenn græði hafið og ég vil ekki taka undir þau orð hv. þingmanns að það sé eitthvað til að tala niður til, alls ekki. Ég tel að það hafi náðst mikill árangur einmitt á landi með endurheimt og nýtingu landgæða í samvinnu við bændur og bændur græða landið . Sami hugsunarháttur og sama nálgun getur líka átt við á sjó.
Mér finnst gott að hv. þingmaður hvetji ráðherra til dáða í þessum efnum. Ég geri ráð fyrir því að ráðherra íhugi það mjög vandlega. Það er að vísu skammur tími sem við höfum núna. En eftir næstu kosningar og næstu ríkisstjórn kemur góður tími. Mér finnst gott hjá hv. þingmanni að vera með alla þessa hvatningu í þessum efnum og árétta að það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir minni byggðir og ekki síst í þeirri stöðu sem atvinnulífið nú stendur frammi fyrir á þessum stöðum að geta fundið allar leiðir til að skapa þar aukið líf og sérstaklega fyrir unga fólkið sem er að koma kannski heim úr skólum yfir sumartímann og getur þar átt aðgang að því að geta róið frá ströndinni til fiskjar. Þetta er auðlindin sem byggði upp þessi samfélög, sem byggði upp þessar byggðir og auðvitað finnst okkur að íbúarnir og fólkið þar eigi að hafa vissan forgang að því sem þar er næst ströndu.