136. löggjafarþing — 77. fundur,  9. feb. 2009.

stjórn fiskveiða.

63. mál
[17:39]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Það er útúrsnúningur hjá hv. þingmanni að leggja út frá því að skipta þurfi þessu upp í kvóta eftir einhvern ákveðinn tíma, það er rangt. Það er verið að tala um að búa til pott, hvort sem hann er 10 þús. tonn, 15 þús. tonn eða hvað sem er, og þegar búið er að fiska hann þá er þessi pottur einfaldlega búinn. En þeir sem hafa tækifæri til að fara og sækja í hann hafa fengið að veiða og það er það sem þetta snýst um. Það yrði fyrsta skrefið í því að leiðrétta mannréttindabrotin og bregðast við því áliti mannréttindanefndar sem áður hefur verið talað um.

Þetta skapar nýliðun og það er ekki hugsunin með frumvarpinu að menn fari að braska með þessar veiðiheimildir, hvorki í dag né seinna, aldrei. Þetta á ekki að vera neitt braskkerfi eins og við höfum búið við síðan frjálsa framsalið var sett á 1990. Það eiga ekki að vera neinir sægreifar sem geta leigt þetta, veðsett eða selt. Þeir fá bara aðgang að ákveðnum potti og þegar hann er búinn þá stoppa allir sem eru á þessum báti. Það hefði átt að leigja út þessi 30 þús. tonn, sem voru viðbótarafli — og séreignarákvæði, hvort sem það er kvótakerfi, sóknarmark eða aflamarkskerfi, þá fagna ég því að hv. þingmaður er farinn að átta sig á því að það er betra að vera með sóknarmark en aflamark sem liggur einfaldlega í því að ekkert brottkast er í sóknarmarki en það er til í ómældu magni í aflamarkskerfinu, og kannski aldrei meira en í dag.