stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Bara örstutt. Ég vil þakka þá umræðu sem hér hefur farið fram. Hér hafa margir tekið til máls og tjáð sínar skoðanir um að það væri eðlilegt að horfa til þeirra hugmynda sem hér eru lagðar til þó að vissulega hafi verið einhver varnaðarorð í því. En að jafnaði tel ég að það megi meta það svo að mönnum finnist eðlilegt að finna þeirri tillögu sem hér er lögð fram og talað fyrir í frumvarpsformi einhvern farveg. Það væri mjög æskilegt eins og nú hagar til í okkar þjóðfélagi með atvinnumál og annað slíkt að það verði gert.
Það hefur einnig verið bent á að byggðakvótarnir séu ekki þegar komnir út á þessu ári þannig að það er ekki eins og það séu ekki ýmsir möguleikar til fyrir hæstv. sjávarútvegsráðherra ef hann vill bregðast við með einhverjum hætti. Við höfum bent á það í þessari umræðu, fleiri en sá sem hér stendur, að það má setja á þessa útfærslu ýmsar takmarkanir þó að útfærslan opni fyrir það að slíkar veiðar geti farið af stað. Það væri mjög ánægjulegt eins og nú árar hér á landi að geta gefið þau merki út í þjóðfélagið að hér væru kannski að opnast möguleikar á eitt hundrað störfum eða einhverju slíku. Við getum nefnt það sem dæmi eða viðmiðun.
Hins vegar þurfa menn nú að hafa fyrir því að fara inn í svona kerfi. Þeir þurfa að hafa aðgang að bát. Hann þarf að vera haffær og menn þurfa að hafa réttindi og svo framvegis þannig að það er ýmislegt í því. Þó að menn hafi einhvern tíma tekið pungapróf þá er það nú ekki í gildi. Ég vil nú bara upplýsa vin minn hv. þm. Illuga Gunnarsson um það vegna þess að menn þurfa að endurnýja þessi réttindi á fimm ára fresti, viðhalda þeim, fara í Slysavarnaskóla sjómanna, kunna allar þær reglur og lög sem þar eru kennd og viðbrögð, fá útgefið sérstakt skírteini um að þeir hafi fengið þjálfun sem sjómenn í Slysavarnaskóla sjómanna og út á það geta menn svo ásamt því að fá heilbrigðisvottorð og sjónvottorð (Gripið fram í.) staðfest það að þeir séu hæfir. (IllG: Get ég lært hjá þér?) Þú getur lært ýmislegt hjá mér ef út í það er farið. (Gripið fram í.)
Þó að hér sé verið að leggja til ákveðna opnun þá er langur vegur frá því að þetta sé galopið, að það geti bara allir hoppað inn í þetta. Það er mikill misskilningur. Það eru margar takmarkanir sem snúa að atvinnugreininni sjálfri, réttindum manna og þjálfun og viðhaldi réttinda og svo framvegis sem gera það að verkum að þetta er ekki galopið. Við eigum vissulega einhverja sjómenn sem meðal annars hafa starfað á byggingarmarkaði og eru búnir að missa þar vinnuna sem hugsanlega gætu farið í þetta með einhverju lagi.
Ég held að það sé fyllilega áhættunnar virði að hleypa þessu af stað. Það væri mjög jákvætt merki í þjóðfélagið miðað við núverandi stöðu og ég held að það væri mjög jákvætt gagnvart byggðunum og viðhorfi fólks í sjávarútvegsbyggðunum að svona réttur væri opnaður. Ég hvet því eindregið til þess, hæstv. forseti, að það verði gert, þ.e. að stíga hér skref þó að það verði bara skref sem gildir eingöngu á núverandi fiskveiðiári. Það verður svo næsta ríkisstjórn sem tekur ákvörðun um það hvort menn vilja framhaldið. Ég held að það skipti öllu máli fyrir okkur í núverandi stöðu að horfa til allra þeirra tækifæra sem við getum mögulega átt til þess að bæta atvinnuástandið í landinu og afla okkur tekna og viðurværis. Ég hef orðað það svo stundum hér í þessum ræðustól að í því sambandi þyldi þjóðin ekki neitt tilfinningavæl. Menn eiga að horfa ískalt til þess að reyna að auka atvinnumöguleika, alveg ískalt til þess. Þegar við veltum fyrir okkur ástandinu sem við horfumst í augu við og því sem kannski bíður okkar næstu þrjú, fjögur árin þá segi ég bara að okkur muni ekki af tekjunum veita og af störfunum veita. Við munum aldrei fara í gegnum það ástand sem fram undan er á niðurskurðarreglunni einni og sér. Við munum þurfa að auka tekjur og auka atvinnu. Við getum vissulega þurft að skera niður og hækka jafnvel skatta og svo framvegis og útfæra það á þá sem þola aukna skattbyrði. En við munum aldrei fara í gegnum þetta ástand á niðurskurðarhnífnum einum. Það er útilokað mál. Það held ég að menn ættu að hafa sérstaklega í huga þegar við erum að tala hér um einhver viðbrögð til þess að auka atvinnu í landinu.