136. löggjafarþing — 78. fundur,  10. feb. 2009.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Borist hefur bréf frá hv. 6. þm. Norðvest., Guðjóni A. Kristjánssyni, um að hann geti ekki af persónulegum ástæðum setið á Alþingi næstu tvær vikur. Annar varamaður Frjálslynda flokksins í kjördæminu, Ragnheiður Ólafsdóttir listamaður, tekur sæti á Alþingi í dag en 1. varamaður á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi hefur boðað forföll.

Kjörbréf Ragnheiðar Ólafsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.

[Ragnheiður Ólafsdóttir, 6. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]