136. löggjafarþing — 79. fundur, 11. feb. 2009.
tilkynning um dagskrá.
Um klukkan tvö í dag, strax að loknum dagskrárliðnum Störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um áform ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu á álveri á Bakka við Húsavík. Málshefjandi er hv. þm. Ólöf Nordal. Hæstv. umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.