starfsemi viðskiptabankanna.
Virðulegur forseti. Því verður ekki á móti mælt að ýmislegt einkennilegt hefur komið fram síðustu daga sem varðar mannaráðningar af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. Hæstv. forsætisráðherra skrifar bréf til bankastjóra Seðlabankans og óskar eftir því að þeir hverfi á braut hið fyrsta, skrifar síðan annað bréf til tveggja þeirra og lýkur á þá miklu lofsorði og segir að ekkert sé athugavert við störf þeirra. Maður hlýtur þá að velta því fyrir sér hvers vegna verið var að biðja menn um að hætta.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra upplýsir síðan að til umræðu sé að skipta um formenn bankaráða og þegar bankaráðsformennirnir verða við þeim óskum forsætisráðherrans kemur fjármálaráðherra og lýkur lofsorði á þá og biður þá endilega að vera áfram. Það fer að verða dálítið hættulegt fyrir menn sem hafa tekið að sér störf að undanförnu á vegum ríkisstjórnar að hæstv. ráðherra fari að minnast þeirra og tala hlýlega um störf þeirra og hæla þeim fyrir vel unnin störf, það fylgir greinilega í kjölfarið að menn eru beðnir um að víkja. Það sérkennilegasta í öllum þessum mannaráðningum er að við erum með ópólitískan ráðherra sem nýtir sér ákvæði laga til að ráða sér aðstoðarmann sem ætlað er að hjálpa ráðherranum að koma fram pólitískri stefnu sinni í ráðuneytinu gegn embættismannavaldinu þar. Virðulegi forseti. Þetta er orðið dálítið á haus, allt þetta leikverk sem hæstv. ríkisstjórn er búin að setja á fót.
Ég vil, virðulegi forseti, mótmæla aðdróttunum í garð formanns bankaráðs Landsbankans, Ásmundar Stefánssonar, sem komu fram í máli hv. málshefjanda. Það er alveg ljóst að hann hefur tekið að sér að brúa ákveðið bil, hann hefur ekki sóst eftir því, mér finnst ekki að menn eigi að bera í bakkafullan lækinn og veitast að formanni bankaráðs Landsbankans.