virkjun sjávarfalla við Ísland.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þá framsýni sem birtist í fyrirspurn hans. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að töluverðir möguleikar liggja í virkjun sjávarfalla og líka virkjun ölduhreyfingar. Þessari tækni fleygir fram og ég hef sem iðnaðarráðherra reynt að fylgjast með henni. Ég hef reynt að nýta ferðalög til útlanda til að sækja líka ráðstefnur um málið og satt að segja varð ég undrandi þegar ég komst að því að það eru til meira en 100 mismunandi aðferðir til að beisla þessa orku.
Hv. þingmaður spyr hvort ég hyggist beita mér fyrir því að mótuð verði stefna um sjávarfallavirkjanir. Svarið er já, þ.e. ég hef þegar hrundið af stað vinnu við gerð framtíðarorkustefnu sem á að ná töluvert langt fram eftir þessari öld. Þar er m.a. lögð áhersla á það sem við getum leyft okkur að kalla óhefðbundna orkugjafa, þ.e. orkugjafa eins og djúpboranir, eins og nýtingu aukins afrennslis af jöklum í gegnum núverandi virkjanir. Þar er um að ræða möguleika sem gætu aukið orkuframleiðsluna síðar á öldinni allt að 60%, sömuleiðis er verið að skoða möguleika á notkun vindorku. Ég er ósammála hv. þingmanni um að það séu takmarkaðir möguleikar á því sviði. Þar hefur tæknin líka breytt útsýninu. Sömuleiðis er möguleiki að nota hveragufu til að framleiða metanól. Ég tel að miklir möguleikar séu í því, sérstaklega á svæðum eins og Þeistareykjum þar sem mikið vetni er að finna í jarðgufu. Sjávarfallavirkjanir verða líka teknar inn í stefnumótunina.
Svarið er sem sagt já við þessu.
Hv. þingmaður spyr hvort einhverjar rannsóknir liggi fyrir á vegum opinberra aðila um kosti og hagkvæmni sjávarfallavirkjana við Ísland. Svarið er að hálfu leyti játandi og hálfu leyti neitandi. Þær rannsóknir sem eru fyrir hendi sem beinlínis varða kosti miðast auðvitað við tækni síðustu ára en henni hefur fleygt svo gríðarlega fram núna á allra síðustu árum að segja má að þær rannsóknir hafi ekki haldið í við tækniþróunina. Ég verð hins vegar að geta þess að einn af mínum allra eftirminnilegustu kennurum, Unnsteinn Stefánsson, prófessor í haffræði, var frumkvöðull á þessu stigi, þ.e. hann hóf fyrstu rannsóknirnar á Hvammsfirði. Það má segja að upp frá því hafi menn farið að velta fyrir sér þessum möguleikum. Hv. þingmaður gat hér um merkt erindi sem haldið var árið 2006. Það var í kjölfar þess að ráðist var í úttekt á möguleikum gegnumstreymishverfla til raforkuframleiðslu. Sú niðurstaða leiddi til þess að mjög áhugavert væri að kanna nýtingu sjávarfallastraumanna í Breiðafirði til orkuframleiðslu. Reynt var að meta stærðargráðu fjárfestingar út frá upplýsingum sem þá lágu fyrir frá því fyrirtæki sem var að þróa hverflana. Út frá þeim upplýsingum og ýmsum öðrum forsendum var reynt að áætla framleiðslukostnað raforkunnar fyrir mismunandi straumhraða.
Siglingastofnun, sem er afburðagóð stofnun á sviði sjávarmælinga, þróaði sjávarfalla- og straumalíkan í samvinnu við Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sem telur að með því sé hægt að áætla straumhraða við strendur landsins og gera sér grein fyrir því hvar er líklegast að bera niður.
Hv. þingmaður þekkir sjálfur fyrirtækið Sjávarorku sem með vissum hætti er opinbert fyrirtæki vegna þess að Rarik er stór hluthafi í Sjávarorku. Það hefur fengið stuðning úr Orkusjóði til að rannsaka og meta vinnanlegt orkumagn í Breiðafirði. Sjávarorka hefur núna uppi áform um að ráðast í sjö ára mælingar á rannsóknum á þeim stöðum sem eru í Hvammsfirði og sundunum við heimastað hv. þingmanns. Þetta fyrirtæki hefur óskað eftir rannsóknarleyfi vegna þessara rannsókna. Svo get ég þess að það eru mjög fróðlegar tvær lokaritgerðir við tæknifræðiskor Háskólans í Reykjavík sem fjalla einmitt um virkjun sjávarfalla.
Hv. þingmaður spyr hvort ráðuneytið hyggist beita sér fyrir stuðningi við þá sem metið hafa virkjanakosti sjávarfalla í Breiðafirði. Ráðuneytið hefur þegar gert það, að vísu ekki í miklum mæli en það hefur lagt fram sem svarar 10 millj. kr. til þess að kanna þá kosti. Það er sjálfsagt að skoða það en þá yrði fyrst og fremst um að ræða fjárhagslegan stuðning orkuráðs og það ber svo vel í veiði fyrir 1. þm. Norðvest. að hv. þm. Mörður Árnason stendur hér í gættinni en hann er einmitt formaður Orkusjóðs.