virkjun sjávarfalla við Ísland.
Frú forseti. Ég vil bara taka undir orð hæstv. iðnaðarráðherra og fagna þessari fyrirspurn hv. þm. Sturlu Böðvarssonar um virkjun sjávarfalla við Ísland. Ég held að það sé alveg ljóst að okkur ber að huga að og kanna virkjunarkosti sem geta verið svona rækilega sjálfbærir og ganga ekki á aðra umhverfisþætti. Einnig hefur öldustyrkurinn verið nefndur, ölduhæðin, ölduhreyfingarnar, straumarnir í Breiðafirði og víðar sem ég tek undir að sé sjálfsagt að kanna með mikilli virðingu fyrir lífríki Breiðafjarðar og því mikla umhverfisdýrmæti sem þar er. Einnig vindorkan eins og hæstv. ráðherra minntist á. Ég veit að við hv. þingmaður erum sammála um það. (Forseti hringir.) Mér finnst hið besta mál (Forseti hringir.) að þetta sé kannað.