viðbótarsamningar við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu og Króatíu.
Frú forseti. Rétt fyrst varðandi Georgíu. Það verður örugglega tilefni til þess að taka þau mál frekar til umræðu, m.a. á vettvangi utanríkismálanefndar, eins og ég greindi frá hér við fyrri umræðu um þetta mál. Ég vil þó benda á að skýrsla frá ÖSE um stríðsátökin í Kákasus er athyglisverð, þar sem bæði Georgía og Rússland eru sökuð um stríðsglæpi. Það er hlutur sem mun áreiðanlega koma inn í þá umræðu.
Varðandi ummæli hv. varaformanns Sjálfstæðisflokksins, um að minnihlutaálit mitt vekti sérstaka athygli, vil ég segja: Það þarf ekki að vekja neina sérstaka athygli því að það er algerlega í samræmi við þá afstöðu sem minn flokkur hefur tekið í málefnum af þessu tagi.
Talandi um það að virða sjálfsákvörðunarrétt þjóða og stuðla að lýðræðisþróun þá vekur það athygli að varaformaður Sjálfstæðisflokksins er þeirrar skoðunar að í lýðræðisríki eins og Íslandi eigi menn ekki að reifa skoðanir sínar og koma þeim á framfæri. Það er það sem ég er að gera hér. Ég held skoðunum okkar fram, skoðunum sem við höfum að sjálfsögðu fullan rétt til að hafa — vænti ég. Ég held þeim til haga og kem þeim á framfæri. En við afgreiðslu málsins hef ég líka lagt á það áherslu að við virðum sjálfsákvörðunarrétt albönsku og króatísku þjóðanna, að sjálfsögðu. Ég sem formaður nefndarinnar hef lagt mig fram um að málið fengi skjóta afgreiðslu á hennar vegum vegna þess að ég geri mér grein fyrir því að meirihlutavilji er fyrir því á Alþingi og hann virði ég.