viðbótarsamningar við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu og Króatíu.
Frú forseti. Aldrei þessu vant þá drjúpa orðin af vörum hv. þingmanns eins og hunang. Ég er um það bil sammála öllu sem hv. þingmaður sagði nema hinu síðasta. Ég tel að hv. þingmaður sé á fullkomlega réttri braut þegar hún segir að mikilvægt sé að breið samstaða sé um mál af þessu tagi. Ég tel að það sé mjög mikilvægt og mikils virði að á Alþingi sé að finna breiða samstöðu um grunnstefnuna í utanríkismálum. Hana hefur verið að finna á síðustu árum jafnt á millum stjórnar og stjórnarandstöðu. Á sínum tíma tók ég, sem einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar, ríkan þátt í utanríkismálastarfi Alþingis. Ég lagði mig í líma við, ef kostur var, að styðja þá utanríkisstefnu sem ríkisstjórnin hafði hverju sinni til þess að Ísland talaði einni og sannfærandi röddu á erlendum vettvangi.
Ég tel að það sé líka rétt hjá hv. þingmanni að í sjálfu sér beri að virða það hjá hv. formanni utanríkismálanefndar að hann stendur á sannfæringu sinni. Það ber líka að virða það við hann að sem formaður nefndarinnar lagði hann sig í líma við að láta þá afstöðu ekki hafa áhrif á gang málsins heldur stuðla að því að málið yrði afgreitt skjótt og vel. Ég vildi óska þess að sú staðfesta sem hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hefur sýnt í þessu máli flytjist yfir á hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í öðru utanríkismáli, þ.e. Evrópusambandsmálinu. Ég vildi óska þess að hún hefði þá staðfestu til að bera að halda fram því sem er sannfæring hennar í því.
Hvað varðar síðan breytingar á stjórnarskrá, sem er kannski eðlis óskylt því sem við ræðum hér, var ekki rétt hjá hv. þingmanni að þær breytingar sem við höfum lýst, og ég m.a. á þessum morgni, séu Sjálfstæðisflokknum framandi. Hann hafði frumkvæðið að þeim breytingum og hann bjó þær sjálfur í frumvarpsform í stjórnarskrárnefnd. Þannig að það er ekki hægt að segja annað en að Sjálfstæðisflokkurinn hafi byrjað málið, hafi unnið málið, sannfært aðra flokka. (Forseti hringir.) Svo allt í einu kemur varaformaður Sjálfstæðisflokksins og segir eiginlega að ekki sé hægt að samþykkja málið núna af því það sé svo mikið flaustur, málið sem Sjálfstæðisflokkurinn (Forseti hringir.) bjó til og undirbjó.