fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir athugasemdir og ýmsar ábendingar í ræðu sinni. Það er alveg rétt sem kom fram hjá hv. þingmanni að við erum ekki sammála í því hvaða hugmyndafræði á að liggja að baki í stofnun og rekstri fjármálafyrirtækja. Hv. þingmaður er jú fulltrúi þess tíma sem vildi að bankarnir væru einkavæddir og að haft væri sem mest frelsi á fjármálamarkaðnum. Hann er einnig fulltrúi þess að menn gætu þar kallað eftir arði af þeirri starfsemi eins og í öðrum fyrirtækjarekstri. Það er í sjálfu sér sjónarmið sem gengur í venjulegum hlutafélagarekstri að menn leggja þar hlutafé inn og reyna að fá fyrir það mestan arð.
Undir það gengust líka hlutafélagavæddu bankarnir þegar þeir voru einkavæddir. Ég minnist þess einmitt að þegar ákveðinn banki — hvort það var Landsbankinn — hafði verið einkavæddur og seldur fór hann að kaupa og selja útgerðarfyrirtækin og hirða úr þeim peningana. Íbúar á Skagaströnd voru mjög áhyggjufullir yfir því að Skagstrendingur var kominn í eitthvert eignarhaldsfélag á vegum Landsbankans og voru að velta því fyrir sér hvernig væri með hagsmuni byggðanna, hvort sem það var á Skagaströnd eða Akranesi eða annars staðar. Þá sagði einn af yfirmönnum bankans: Við berum þá hagsmuni eina fyrir brjósti að hámarka arð hluthafanna. Hvort það komi síðan eitthvað illa niður á einhverri sérstakri byggð eða ekki er ekki okkar mál. Þannig hafa þessir hlutafélagavæddu bankar og fjármálafyrirtæki verið rekin á undanförnum árum til að hámarka arð eigenda sinna. Það er í sjálfu sér markmið þó að ég sé ekki sammála að það eigi að gerast með þeim hætti.
Hv. þm. Birgir Ármannsson talaði um að það að viðhalda og rækta heiðarleika og rækta hugsjónir sparisjóðanna væri eitthvað sem tilheyrði fortíðinni og að við ættum ekki að vera að endurvekja það hér. Ég er honum einfaldlega ekki sammála. Ég held að það sé einmitt brýnt nú að rækta aftur þær hugsjónir sem hv. þingmaður kallaði tilfinningasemi. Fyrir mér eru heiðarleiki, samvinnuhugsjón og félagshyggja ekki tilfinningasemi. Það er grunnur sem við byggjum samfélagið á og líka fjármálastofnanir. Að halda að fjármálastofnanir geti verið undanþegnar þessum grunngildum og það sé gamaldags að halda í þau, því er ég ekki sammála. Ég held einmitt að það sé mikils um vert að gera það.
Ég minni líka á í þessu sambandi að við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs töldum að ekki hefði átt að fara í þessa hröðu einkavæðingu á bönkunum á sínum tíma. Við fluttum frumvarp um að aðskilja ætti fjárfestingarsjóði og almenna bankastarfsemi, það ætti ekki að vera inni í sama banka. Við fluttum um það frumvarp, þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, eins og hv. þm. Birgir Ármannsson veit. Sömuleiðis fluttum við frumvarp um dreifða eignaraðild á bönkunum og fleiri slíkar takmarkanir sem við vildum gera sem þáverandi stjórnarflokkar undir forustu Sjálfstæðisflokksins létu ganga fram með þeim hætti sem raun bar vitni.
Þótt hv. þingmaður segi að nafnið „sparisjóður“ sé bara eitthvert tilfinningaheiti eða eitthvað svoleiðis þá er það gildismat fyrir mér. Í því er fólgið ákveðið merki um það hvernig viðkomandi stofnun og þjónustustofnun er rekin og hvert eignarhald hennar er.
Núna er verið að tala um að íslenskt grænmeti sé sérmerkt því að það sé íslensk framleiðsla svo að kaupandinn geti áttað sig á því hvort það íslensk eða innflutt vara. Gæði grænmetisins þurfa ekkert að vera mismunandi en þetta er ákveðin gæðavottun, stimpill til neytandans, samfélagsins um hvaða vöru er að ræða. Sama er með ýmsar aðrar vörur þar sem við leggjum áherslu á að merkin þeirra séu sönn. Það þýðir ekki að aðrar vörur undir öðru merki geti ekki þess vegna átt sér sinn rétt og þjónað sínu hlutverki. Ég er því ekki sammála hv. þingmanni um að hugsjónir sparisjóðanna sem þeir byggðu á, að menn geti stundað og verið aðili að fjármálastarfsemi án þess að hugsa fyrst og fremst um eigin arð, sé úrelt hugsjón. Ég tel einmitt að það sé hugsjón sem við eigum að byggja á áfram.
Það væri svo sem hægt að fara út í það ef menn vilja og rekja hvað gerðist með ýmsa sparisjóði sem urðu græðgisvæðingunni að bráð. Menn keyptu stofnfjárhluti þeirra á yfirverði og hleyptu þannig tilveru þeirra upp. Ég hef talið að stofnfé ætti aldrei að seljast á meira en nafnvirði, þetta ætti að vera þjónustustofnun á þeim grunni sem sparisjóðirnir voru byggðir á. Þegar menn eru komnir í hitt hugtakið, að stofnfjárhlutirnir seljist á einhverju framboðs- og eftirspurnarverði og trekkt upp eins og hlutabréfaverð í bönkunum, erum við komin inn í annað form. Þá eiga þeir ekki lengur að heita sparisjóðir, það er bara svo einfalt.
Það er alveg rétt að verið er að skoða þessi mál og ég er alveg sammála hv. þm. Birgi Ármannssyni í því að umgjörð fjármálafyrirtækjanna fari í einhverja heildarendurskoðun, ég er alveg hjartanlega sammála því, það er brýn nauðsyn. Ég sagði það hér í ræðu að varðandi nýju hlutafélagabankana að setja ætti um þá sérstök lög. Þeir væru í rauninni komnir út af því sviði sem almenn hlutafélagalög og lög um hlutafélagabanka giltu um þannig að það eru komnar allt aðrar aðstæður. Það væri jafnvel brýnt að finna þeim lagaramma í takt við þá breyttu tíma sem við stöndum nú frammi fyrir hvað varðar bankarekstur. Ég held að enginn vilji endurvekja þann tíma þegar einkavæðing bankanna varð og græðgisvæðing sem fylgdi í kjölfarið. Frekar á að byggja upp á klassískum gildum um heiðarleika, um félagshyggju og samhjálp. Við sem þekkjum og höfum alist upp í sparisjóðahugsjóninni og sparisjóðaheitinu vitum hvað það þýðir. Það þýðir ekki það sama og hlutafélagabanki. Það hefur ákveðin gildi og þess vegna legg ég áherslu á að þessu frumvarpi er fyrst og fremst ætlað að standa vörð um þau gildi sem sparisjóðirnir gera. Ég tel að það sé líka mikilvægt fyrir framtíðina að við endurvekjum aftur hin gömlu, góðu gildi sem byggja á heiðarleika, samhjálp og félagshyggju eins og sparisjóðirnir gerðu þegar þeir voru stofnaðir í upphafi og ýmsir þeirra hafa starfað enn þann dag í dag með þeim hætti.
Ég legg svo til, herra forseti, að þegar þessari umræðu er lokið verði þessu frumvarpi vísað til hv. viðskiptanefndar.