136. löggjafarþing — 81. fundur,  16. feb. 2009.

vinnubrögð við gerð fjárlaga.

241. mál
[18:51]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Ragnheiður Ólafsdóttir gerir þá athugasemd í ræðu sinni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi setið í stjórn í 18 ár og við séum hér, tveir eða þrír þingmenn, að mæra hver annan. Ég lít ekki svo á að við séum að mæra hver annan. Sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins ber ég fulla ábyrgð á því sem flokkur minn hefur staðið fyrir frá þeim tíma sem ég kom inn á þing, 13. maí 2007, og ég axla hana. Ég tel að flokkurinn minn þurfi virkilega að skoða það sem miður fór og læra af mistökum sem gerð voru í því umhverfi sem við skópum.

En frá því að ég kom hér inn og tók sæti í menntamálanefnd og í heilbrigðisnefnd hefur mér þótt vinnulag hv. fjárlaganefndar við fjárlagagerðina sérkennilegt. Ég hef margoft nefnt það í starfi mínu í umræddum nefndum og ég hef nefnt það við ágætan fyrrverandi fjármálaráðherra, Árna M. Mathiesen, í þingflokki okkar. En það þarf kannski meira en tvo til þrjá þingmenn til að velta þungu hlassi. Hvort heldur sem er er nauðsynlegt að laga það vinnulag sem er við fjárlögin. Ég tek á mig mína ábyrgð sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins og axla hana en ég tel mig hafa allan rétt til þess að reyna að breyta vinnubrögðum á þann veg sem ég tel að geti orðið til hins betra.