136. löggjafarþing — 81. fundur,  16. feb. 2009.

vinnubrögð við gerð fjárlaga.

241. mál
[18:58]
Horfa

Ragnheiður Ólafsdóttir (Fl) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það má segja að safnað hafi verið í sjóði og skuldir ríkissjóðs hafi á sínum tíma verið greiddar niður. Ég veit það og hef fylgst með því, það var gott og þarft verk og það er það sem bjargar því litla sem bjargað verður í stöðunni eins og hún er. Það breytir samt ekki því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd öll þessi ár, verið í ríkisstjórnum. Hann hefur borið meginábyrgð á öllu því sem er að gerast og við skulum bara horfa á það að þetta með bankahrunið og annað því um líkt — gerð var lagaumgjörð til þess að þetta gæti allt saman komist í þann farveg sem það fór í með útrásinni.

Við getum rakið það aftar í tímann, það var þegar veitt var leyfi frá yfirvöldum til að veðsetja óveiddan fisk í sjó. Þar byrjar allt vandamálið og það vindur upp á sig og heldur áfram að rúlla þegar bankarnir leyfa þessa veðsetningu og taka við. Þar fer öll skriðan af stað. Guði sé lof fyrir það að innan Sjálfstæðisflokksins eru enn þann dag menn sem vilja breytingar og lagfæringar og fyrir það þakkar maður.