136. löggjafarþing — 82. fundur, 17. feb. 2009.
tilkynning um dagskrá.
Um klukkan tvö í dag, að loknum liðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um ástæðu Breta fyrir að beita hryðjuverkalögum á Íslendinga. Málshefjandi er hv. þm. Siv Friðleifsdóttir. Hæstv. utanríkisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.