eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.
Virðulegi forseti. Ég ætla að fara í föt hv. þingmanns og leyfa mér að túlka orð hans í ræðustóli eins og hann er vanur að gera eftir að aðrir hafa tekið til máls. Ég skil þá hv. þingmann þannig að hann telji brýna nauðsyn bera til þess að afnema þær eftirlaunareglur sem gilt hafa um forsetann. Ég geng út frá því að hið sama eigi þá við um þær eftirlaunareglur sem gilt hafa um hæstaréttardómara og aðra þá sem þetta mál fjallar um.
Ég hallast nú frekar að hinu sjónarmiðinu, að það séu alveg fullgild rök til þess að forseti Íslands, sem til að mynda gæti hafa verið tvö ef ekki þrjú full kjörtímabil, geti farið á eftirlaun en þurfi ekki að vera því háður að sækja sér starf á almennum vinnumarkaði eða eftir atvikum annars staðar í stjórnkerfinu. Ég held að það séu fullgild rök fyrir þeirri reglu en hana er verið að afnema hér og það er ágætt að hv. þingmaður hefur nú gert sér grein fyrir því. Hann styður það.
Hann styður, að því er mér heyrist, líka breytingar á frumvarpinu þess efnis að girt verði fyrir það að þingmenn taki á sama tíma eftirlaun og þeir eru í opinberu starfi, þ.e. í starfi á vegum ríkisins eða stofnana þess eða félaga í meirihlutaeigu þess. Ef hann er þeirrar skoðunar hlýtur hann jafnframt að ætla að beita sér fyrir því að sama reglan gildi um alla opinbera starfsmenn, þ.e. fyrir almennri breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins sem girðir fyrir að opinberir starfsmenn njóti þessara réttinda sem þeir hafa sannarlega gert í áratugi.