136. löggjafarþing — 83. fundur, 18. feb. 2009.
tilkynning um dagskrá.
Um klukkan tvö í dag, að loknum störfum þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um undirbúning loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn. Málshefjandi er hv. þm. Illugi Gunnarsson. Hæstv. umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.