136. löggjafarþing — 83. fundur,  18. feb. 2009.

hlutur kvenna í stjórnmálum.

301. mál
[15:06]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir fyrirspurnina og viðbrögðin við henni. Það er auðvitað sorgleg staðreynd að þegar konum fjölgaði, eins og hv. þm. Siv Friðleifsdóttir fór yfir, var það hluti af átaksverkefni og það er eiginlega það ömurlega við þetta allt saman. Þegar okkur tekst að fjölga konum þannig að rétt slái í 35% glerþakið, sem virðist vera orðin lenska hér á landi, þá er það í tengslum við átaksverkefni. Lýðræðið og það að ná því að verða fullburða lýðræðisríki þar sem kynjahlutföll eru jöfn á ekki að vera átaksverkefni. Við náum því ekki að verða fullburða fyrr en kynjahlutföllin eru jöfn. Það á ekki að gerast með átaki. Það á að vera venja í samfélagi okkar.

Virðulegi forseti. Við þurfum svo sannarlega að taka á. Það er sorglegt hversu konum hefur fækkað á þingi og ég vil líka beina því til hæstv. félagsmálaráðherra að hún skoði það að konur virðast einhverra hluta vegna staldra skemur við í stjórnmálum en karlar,. Ég held að vert væri að taka saman hversu lengi konur staldra við í stjórnmálum (Forseti hringir.) annars vegar og karlar hins vegar.