136. löggjafarþing — 83. fundur,  18. feb. 2009.

hlutur kvenna í stjórnmálum.

301. mál
[15:11]
Horfa

Guðfinna S. Bjarnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að fagna því að í dag eru í ríkisstjórn jafnmargar konur og karlar. Mér finnst það áfangi og er stolt af því að í ríkisstjórn okkar, sem nýtekin er við, séu jafnmargar konur og karlar. Þannig vil ég sjá þetta.

Ég tala af svolítilli reynslu um jafnréttismál. Undanfarin 30 ár hef ég látið mig þessi mál miklu varða. Ég veit að við konur erum svolítið öðruvísi en karlar, sem betur fer, en við erum 50% af samfélagi okkar og ég tel mjög mikilvægt að við höldum því til streitu og berjumst fyrir því að fjöldi karla og kvenna verði sem jafnastur í þingmannaliðinu. Þegar ég lít yfir salinn sé ég aðallega konur. Ég þakka Merði fyrir að hafa blandað sér í umræðuna og hvet karla og Kristján eða ykkur, ég hvet ykkur til að koma með okkur í þetta vegna (Forseti hringir.) þess að núna þegar við breytum (Forseti hringir.) lýðræðissamfélagi okkar þurfa konur að koma þar að (Forseti hringir.) í miklu meira mæli en hingað til.