heilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að gefa þinginu munnlega skýrslu um heilbrigðismál, um þá stöðu sem við blasir í heilbrigðisþjónustunni eins og annarri opinberri þjónustu eftir efnahagshrunið í október.
Fjárlagafrumvarpið var í raun úrelt um leið og það var lagt fram. Vinnan við afgreiðslu frumvarpsins var í nokkurs konar herkví vegna óvissuástands sem skapaðist eftir að neyðarlögin voru sett á. Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs tókum ekki þátt í afgreiðslu þess máls. Við mótmæltum þeim niðurskurði sem hér hefur átt sér stað, sérstaklega í heilbrigðisþjónustunni, og bentum á leiðir til þess að spara á öðrum sviðum.
Við búum við þau fjárlög sem samþykkt voru. Eftir þeim verðum við að fara og á þeim stutta tíma sem þessi ríkisstjórn hefur til þess að sinna því mikilvæga hlutverki að koma okkur í gegnum þetta erfiða tímabil, fram að kosningum. Það fylgir því mikil ábyrgð að stýra aðgerðum sem farið verður í til þess að verja heimilin, til þess að verja velferðarkerfið, til þess að koma bankastarfseminni í gang þannig að atvinnulífið geti farið í gang. Þetta er í raun og veru sá verkefnalisti sem þessi ríkisstjórn hefur.
Það sem hæstv. ráðherra skýrði frá í skýrslu sinni voru þær aðgerðir sem hægt var að grípa strax til. Það sem við, þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, mótmæltum í fyrsta lagi mjög harkalega við gerð fjárlaga var nýr sjúklingaskattur sem átti að leggja á við innlögn á sjúkrahús. Ef það hefði orðið að veruleika hefðum við brotið blað í íslenskri heilbrigðissögu með því taka upp skatt við innlögn á sjúkrahús. Við höfum náð samstöðu um það í gegnum tíðina að við förum ekki yfir ákveðin mörk í gjaldtöku. Að reka góða heilbrigðisþjónustu er að reka sjúkrahúsþjónustu sem er gjaldfrjáls fyrir þá sem veikjast og um það viljum við standa vörð. Það var eitt af því fyrsta sem hæstv. ráðherra gerði.
Það er hægt að ná sparnaði á ýmsum sviðum og hæstv. ráðherra fór yfir breytingar á lyfjaafgreiðslu. Það er hægt að ná enn frekari sparnaði hvað varðar lyfin. Við höfum ekki lengur efni á því að leyfa okkur þann lúxus að nota dýrustu lyfin ef ódýrari lyf eru til á markaðnum sem eru jafnörugg og hafa sömu virkni.
Við höfum heldur ekki efni á því að gera margítrekaðar rannsóknir vegna sama sjúkdóms á stuttum tíma eingöngu vegna þess að kerfið býður ekki upp á aðgang að fyrri rannsóknum. Við þurfum að koma á rafrænni sjúkraskrá til að spara þann kostnað.
Við gætum náð niður kostnaði í heilbrigðisþjónustunni með því að auka samvinnu milli stofnana og sveitarfélaga. Við gætum stuðlað að því að út úr þessari kreppu komi ný hugsun þannig að þeir sem koma að velferðarþjónustu í sveitarfélögunum eða svæðisbundið opni hugann og hugsi alveg upp á nýtt: Hvað getum við gert til að efla heilbrigðisþjónustuna? Hvernig getum við unnið betur saman? Getum við gert það með samvinnu eða þurfum við samning eða hvernig förum við að því? Við getum nýtt fjármunina miklu betur og við vitum það öll.
Í öllum þessum hugmyndum um sameiningar á stórum svæðum verðum við að gæta þess að horfa ekki eingöngu út frá stofnununum. Við þurfum að horfa út frá íbúunum sem búa á svæðunum þannig að kostnaðurinn flytjist ekki yfir á þá. Það þarf að jafna aðstöðu fólk í þessu landi.
Það er líka hægt að taka upp mikinn sparnað í heilbrigðisþjónustu með því að koma á tilvísanakerfi. Við getum ekki leyft okkur þann lúxus að fara með minni háttar veikindi til sérfræðinga og valið okkur sérfræðinga sjálf. Við þurfum að efla heilsugæsluna og við þurfum á koma á tilvísanakerfi.