heilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir skýrsluna en heilbrigðismál eru eitt stærsta og mikilvægasta mál samfélagsins og snertir allar fjölskyldur í landinu.
Ljóst var við síðustu fjárlagagerð að skera þyrfti verulega niður í heilbrigðiskerfinu. Fyrrverandi heilbrigðisráðherra hugðist ná þessum niðurskurði fram m.a. með markvissum skipulagsbreytingum. Nú hyggst hæstv. heilbrigðisráðherra afturkalla breytingar á St. Jósefsspítala. Sú ákvörðun hæstv. heilbrigðisráðherra hefur bein áhrif á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. En í tillögum fyrrverandi heilbrigðisráðherra var gert ráð fyrir að starfsemi skurðstofu HSS yrði styrkt með því að færa hluta þeirra skurðaðgerða sem framkvæmdar eru á St. Jósefsspítala til Keflavíkur þar sem til staðar eru nýjar skurðstofur.
Með þessum viðsnúningi hefur hæstv. heilbrigðisráðherra sett þessi mál í uppnám á Suðurnesjum og enn aukið á óvissu sjúklinga og starfsmanna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Stjórnendur standa frammi fyrir miklum niðurskurði sem hefði ekki þurft að vera ef fyrri ákvörðun hefði staðið. Með fyrri ákvörðun hefði Heilbrigðisstofnun Suðurnesja haft tekjur vegna aukinna umsvifa, m.a. á skurðstofum, rannsóknarstofum og vegna inniliggjandi sjúklinga.
Óvissa hefur einkennt starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í mörg ár. Með skipulagsbreytingunum var að nást niðurstaða í málefnum stofnunarinnar þar sem augljóst var að með breytingunum var verið að styrkja stofnunina án þess að skerða þjónustuna eða segja upp starfsfólki. Nú er málefnum HSS enn einu sinni hleypt í uppnám og uppsagnir starfsmanna eru yfirvofandi á landsvæði þar sem atvinnuleysi er mest á landinu. Allt bendir til að nýju skurðstofurnar standi lítið notaðar áfram. Vinstri grænir létu stór orð falla um ráðstafanir og sparnaðaraðgerðir fyrri ríkisstjórnar í heilbrigðismálum. Því er ekki nema von að spurt sé um stefnu hæstv. heilbrigðisráðherra nú.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur nú þegar sagt upp starfsfólki til að mæta niðurskurði og bæjarstjórn Vestmannaeyja hugðist taka tilboði fyrrum heilbrigðisráðherra um að gera samning um rekstur Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Bæjarstjórnin hefur áhuga á því að láta reyna á þann möguleika að reka Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja með annarri sambærilegri þjónustu í Vestmannaeyjum. Vonandi nást samningar um þetta mikilvæga hagsmunamál þeirra.
Sérstakt rekstrarform hefur verið um heilbrigðisþjónustu á Höfn. Sveitarfélagið hefur með samningi við ríkið annast reksturinn þar. Sá samningur hefur ekki verið endurnýjaður en gert var ráð fyrir því í skipulagsbreytingum að Heilbrigðisstofnun Suðurlands yrði aðili að nýjum samningi sem gerður yrði og hefði slíkt fyrirkomulag styrkt heilbrigðisþjónustuna á Höfn að mati fagaðila. Samningurinn þarf að komast á.
Ljóst er að sparnaður í heilbrigðiskerfinu er nauðsynlegur. Ekki er margt sem bendir til að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi nýjar tillögur fram að færa varðandi rekstur þessara heilbrigðisstofnana nema að afturkalla það sem áður var ákveðið. Þeirri óvissu sem skapast hefur við stjórnarskiptin verður að eyða sem allra fyrst.
Í rekstri heilbrigðiskerfisins í rúmlega 300.000 manna samfélagi þar sem takmarkaðar tekjur eru til skiptanna eru í raun aðeins tvær leiðir til sparnaðar: Að auka tekjur og hækka skatta eða skera niður. Verkefnið er ekki öfundsvert því að heilbrigðisþjónusta er okkur ákaflega mikilvæg. Nú reynir á þá sem gagnrýnt hafa á (Forseti hringir.) undanförnum árum en þurfa nú að takast á við stjórnun og þá ábyrgð sem henni fylgir.