heilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra.
Forseti. Ég vil fyrst bjóða velkominn nýjan heilbrigðisráðherra og þakka honum fyrir fyrstu skýrsluna sem hann flytur um heilbrigðismál í þinginu. Það er rétt sem síðasti ræðumaður sagði, við stjórnarskiptin beinist athyglin að hæstv. heilbrigðisráðherra, ekki síst vegna þess að hann hefur verið iðinn við að ræða þau mál og opinberan rekstur ýmsan að öðru leyti, þekkir þau vel og hefur langa reynslu í almennum stjórnmálum og þekkir stjórnsýsluna og ríkisreksturinn betur en margir aðrir sem hér sitja.
Það eru miklar vonir bundnar við hæstv. heilbrigðisráðherra, ekki síst í ljósi afreka þeirra sem þar sátu áður, t.d. hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem nú kemur út eftir eitt og hálft ár í heilbrigðisráðuneytinu. Það voru líka bundnar vonir við hann vegna þess að samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í ríkisstjórn snerist m.a. um ákveðnar úrbætur í heilbrigðismálum sem menn vonuðust eftir að yrðu að veruleika. En það verður að segja hverja sögu eins og hún gengur, þetta eina og hálfa ár entist ekki hv. þingmanni og fyrrverandi ráðherra til mikilla afreka og það liggur ekki mikið eftir heilbrigðisráðherrann í síðara ráðuneyti Geirs Haardes.
Það var auðvitað stefna þeirrar ríkisstjórnar að komast úr ákveðinni pattstöðu í heilbrigðismálum, m.a. með því að líta á reksturinn á heilbrigðisstofnunum og athuga hvort hægt væri að hagræða honum með einhverjum hætti og athuga hvar væri hentugra að taka upp einkarekstur fremur en opinberan rekstur og ég legg áherslu á einkarekstur en ekki einkavæðingu. Það voru sameiginlegir punktar í stefnu þessara flokka sem hefðu getað þrýst málum áfram, menn vonuðust til þess að það gerðist, en því miður varð lítið úr. Það kann að vera, við skulum hafa það þannig, að tíminn hafi ekki nægt heilbrigðisráðherranum þó að honum hafi legið nokkuð á og túlkaði þessa sameiginlegu stefnu, hina varfærnislegu stefnu Samfylkingarinnar í þessum efnum, með þeim hætti sem mörgum mislíkaði vegna þess að hér er um viðkvæm mál að ræða. Þó að einkarekstur eigi vissulega við og hafi lengi viðgengist á ákveðnum stöðum á hann ekki við alls staðar. Það var t.d. ákaflega klaufalegt hjá fyrrverandi heilbrigðisráðherra þegar hann efndi til einkareksturs á einni hæð á heilum spítala, tók eina deild út úr heilu húsi og skapaði þar önnur rekstrarskilyrði en á öðrum stöðum í húsinu. Þetta gengur ekki og það er kannski ekki nema von að síðustu aðgerðir ráðherrans hafi farið eins og þær fóru því að það virðist ekki hafa verið hugsun á bak við þær ráðstafanir sem ráðherrann stóð að.
Við nýjum heilbrigðisráðherra blasir hins vegar miklu erfiðara verkefni eftir efnahagshrunið, annars vegar að svara þeim kröfum sem augljósar eru til þess að við reynum að láta ekki þessar hörmungar bitna á þeim sem minnst mega sín, á sjúklingum, á öldruðum, á börnum, og hins vegar það að heilbrigðisráðherrann er sá ráðherra sem stærsta sneið hefur af kökunni, það er mest fé sem fer í hans málaflokk og þess vegna liggja á honum kvaðir um að verja því sem allra best — það er auðvitað hið eilífa verkefni heilbrigðisráðherra — og reyna að gera hlutina öðruvísi og ódýrar en áður vegna þess að við komumst ekki hjá því að spara líka í heilbrigðisráðuneytinu á næstu árum vegna þeirrar óstjórnar og vegna þeirra hagstjórnarmistaka sem hér hafa verið unnin á umliðnum árum.
Ég vonast til þess að geta farið nánar í heilbrigðismálin síðar í þessari umræðu en hætti hér með mínum góðu óskum til hæstv. heilbrigðisráðherra.