136. löggjafarþing — 84. fundur,  19. feb. 2009.

heilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra.

[12:58]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Það hefur ekki komið á óvart að í umræðunni hér í dag eru menn sammála um að standa vörð um grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins. Enginn getur velkst í vafa um að það er sameiginleg hugsjón flestra, ef ekki allra, þingmanna. Það sem okkur greinir hins vegar á um eru leiðirnar að þessu markmiði, sérstaklega í því ástandi sem nú ríkir.

Vissulega er mikilvægt að stöðug stefnumótunarvinna sé í gangi í ráðuneytinu og að þar starfi mjög færir sérfræðingar sem búa yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu á sínu sviði. Hins vegar er ljóst að stefnan sjálf og ramminn sem þessari vinnu er settur á að koma frá Alþingi. Við þurfum sjálf að taka erfiðustu ákvarðanirnar og þurfum að ákveða hvers konar heilbrigðisþjónustu við viljum bjóða upp á og hverju við höfum ekki efni á.

Svo er það embættismanna og sérfræðinga í ráðuneyti og stofnunum að útfæra þá stefnu. Það er gott að heyra að hæstv. heilbrigðisráðherra hefur tekið upp skipulagsbreytingar hæstv. fyrrverandi ráðherra. Þá er sérstaklega ánægjulegt að heyra að endurskoðun þeirra breytinga verður unnin í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk stofnananna sem um ræðir. Bent hefur verið á að heilbrigðisþjónustan sé fyrir almenning en ekki fyrir starfsfólk en við verðum að treysta því að starfsfólk þessara stofnana vinni að skipulagsbreytingum með hagsmuni almennings að leiðarljósi, enda er það í stöðugum samskiptum við notendur þjónustunnar og ber mest skynbragð á þarfir þeirra.

Þó er ánægjulegast að heyra að hæstv. ráðherra ýtir ekki einhliða öllum tillögum forvera síns út af borðinu. Í þeim tillögum er margt gott, enda hafa margir okkar færustu sérfræðinga komið að undirbúningi þeirra. Við lokavinnslu þeirra hefur því miður skort samstarf og samvinnu sem leiðir til þess að um þær hefur ekki verið samstaða. Slík handarbakavinna í jafnmikilvægum málaflokki er aldrei til góðs. Mikilvægt er að um jafnerfiðar aðgerðir og hér um ræðir náist almenn sátt í samfélaginu. Leggja þarf megináherslu á hlutverk nærþjónustu á borð við heilsugæslu. Hæstv. heilbrigðisráðherra ræddi sérstaklega hugmyndir sveitarfélaga um að yfirtaka hluta heilsugæslunnar. Vissulega eru margir kostir við að nærþjónustan færist í meira mæli til sveitarfélaganna en þar eru einnig margar hættur. Til að svo megi verða þarf að tryggja fjárhagslegan grundvöll heilsugæslunnar betur en gert var t.d. þegar grunnskólarnir voru færðir til sveitarfélaganna. Það þarf að tryggja að ekki komi upp sú staða að þegar skórinn kreppir bendi sveitarstjórnarmenn og ráðherrar hver á annan og almenningur sitji uppi með verri þjónustu á hærra verði. Þá væri verr af stað farið en heima setið.

Allar slíkar hugmyndir verður að vinna faglega og ekki má ana út í slík verkefni án þess að fjárhagslegur grunnur þeirra sé tryggður. Hitt er hins vegar alveg ljóst að heildarendurskoðun og forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu er brýn og allt verður að vera undir.