136. löggjafarþing — 84. fundur,  19. feb. 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[14:06]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að segja að í megindráttum er ég sammála hæstv. fjármálaráðherra og fagna því sérstaklega að við fáum tækifæri til að ræða þetta frumvarp. En ég verð líka að segja að það eru ákveðnar spurningar sem vakna í tengslum við frumvarpið. Ég er sammála því sem kemur m.a. fram í greinargerð með frumvarpinu að við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja, megi réttlæta aðgerðina frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Ég er sammála því að kostir aðgerðanna sem fylgja frumvarpinu séu fleiri en gallar þess.

Hins vegar verð ég að spyrja, sérstaklega í ljósi þess sem hæstv. ráðherra kom inn á, að um sé að ræða eign viðkomandi í séreignarsjóðum. Ég spyr: Af hverju er verið að miða við 1 millj. kr.? Ég átta mig á því að það þarf að finna einhver viðmið en af hverju er verið að setja hámarkið við 1 millj. kr.?

Ég velti líka fyrir mér í ljósi þeirra þrenginga sem eru mismunandi hjá fjölskyldum og einstaklingum hvort ekki hefði verið hægt að hafa viðmiðið hærra, t.d. helming af eignum viðkomandi í séreignarsparnaði, þó aldrei meira en 5 eða 10 milljónir, af því að það eru ekki mjög margir sem eiga meiri eignir. Með þessu veitum við fólki val um það hvernig það leiðréttir fjárhag sinn sem hjá mörgum hverjum er bágborinn. Ég spyr því: Af hverju er viðmiðið ekki hærra? Af hverju er svigrúm fólksins ekki aukið meira? Þá kemur auðvitað: Hættan er hjá lífeyrissjóðunum. Þá segi ég á móti: Gefum okkur að teknir séu út 100 milljarðar. Þá verður ríkið að fá 30 milljarða. Hefði ríkið ekki getað skuldbundið sig samhliða þessum aðgerðum að kaupa þau skuldabréf sem væntanlega verður settur þrýstingur á að gert verði á markaði? Hefði ríkisvaldið ekki getað sagt: Gott og vel. Við ætlum að leyfa fólkinu, einstaklingunum, að velja um þessa leið, fara út í að það geti leyst út hærri fjárhæðir. En um leið ætlum við að tryggja öryggi á markaði með því að eyrnamerkja skattpeninginn (Forseti hringir.) sem hlýst af þessum aðgerðum.