136. löggjafarþing — 84. fundur,  19. feb. 2009.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða o.fl.

321. mál
[15:08]
Horfa

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef það munar mjög um það, af hverju er þá ekki áskilið í frumvarpinu að peningunum sé ráðstafað til þess. Af hverju er það sagt að tilgangur frumvarpsins sé hins vegar að stuðla að aukinni eftirspurn í hagkerfinu? Það er beinlínis gert ráð fyrir því að ótilgreint hlutfall af þeirri fjárhæð sem verður tekin út renni ekki til að greiða úr fjárhagsvanda heldur til að auka eftirspurn í hagkerfinu.

Það gengur í berhögg við það sem núverandi hæstv. forsætisráðherra sagði í upphafi máls síns að þetta ætti bara að vera lítil glufa á séreignarsparnaði í lífeyriskerfinu til afmarkaðra nota til að borga skuldir og ekkert annað. Af hverju hefur þessi ríkisstjórn ákveðið að galopna þessa útgreiðsluheimild? Af hverju, virðulegi forseti? Ef það er meginmarkmiðið, en ekki bara annað af tveimur, að stuðla að því að fólk ráði við skuldir sínar hvers vegna er þá verið að hafa heimildina þannig að fólki sé það algerlega í sjálfsvald sett að nota peningana til annarra hluta en til þess að greiða úr skuldum sínum? Það er vegna þess, virðulegi forseti, sem hér segir, það er til að auka eftirspurn í hagkerfinu. Þetta er eftirspurnarmál. Það út af fyrir sig getur verið markmið við ákveðnar aðstæður en þá eiga menn ekki að vera að halda því fram að þetta mál sé fyrst og fremst til að leysa fjárhagsvanda heimilanna, enda er það ekki. Þetta er í mesta lagi, miðað við mat frumvarpsins sjálfs, 1% lausn og það er auðvitað engin lausn.