136. löggjafarþing — 84. fundur,  19. feb. 2009.

kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna.

273. mál
[16:36]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég skal tala stutt. Ég stend upp fyrst og fremst til þess að lýsa yfir ánægju með frumvarp Helga Hjörvars og níu annarra þingmanna Samfylkingarinnar. Ég held að það gæti bætt lýðræðið í landinu og ég held að það mundi ekki síst, eins og stendur í greinargerðinni, hafa óbein áhrif með því að stuðla að lýðræðislegri stjórnarháttum án þess að ákvæðum þess væri beinlínis beitt þegar það yrði orðinn hluti af lögum um alþingiskosningar og sveitarstjórnarkosningar.

Nú má deila um það og verður fróðlegt að sjá álit í umsögnum um frumvarpið, hversu hátt hlutfall þeirra kjósenda eigi að vera sem krefjast nýrra kosninga til Alþingis eða sveitarstjórnar. Ég hef ákveðnar efasemdir um að krefjast eigi þess að helming kjósenda úr síðustu kosningum þurfi til. Það yrði alltaf mjög erfitt að ná þeim helmingi, jafnvel við sérstakar aðstæður, ósköp einfaldlega vegna þess að undirskriftasöfnun er sem betur fer ábyrgðarhlutur og flestir þeir sem taka þátt í slíku eða hyggja á slíkt skrifa ekki nafn sitt undir hvað sem er. Þess vegna er ég hræddur um að það yrði nánast óvinnandi vegur að fá helming kjósenda til þess að skrifa undir svona nokkuð.

Á hinn bóginn er sú röksemd vissulega gild að ekki megi hafa þetta hlutfall of lágt í alþingiskosningum og sveitarstjórnarkosningum m.a. vegna þess að ekki er ástæða til þess að gera þetta að neinni venju. Þetta er spurning um undantekningu en ekki hefðbundna stjórnarandstöðu á Alþingi eða í sveitarstjórn.

Dæmi þau sem 1. flutningsmaður, hv. þm. Helgi Hjörvar, nefndi áðan, voru góð. Það skýrasta er búsáhaldabyltingin á Austurvelli hér fyrir aftan okkur, forseti. Enginn veit hvernig sá ferill hefði orðið ef í gildi hefðu verið lög af því tagi sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Reikna má með að þá hefði farið af stað slík undirskriftasöfnun. Sú hreyfing sem barðist fyrir breytingum, fyrir kosningum og ýmsum öðrum breytingum sem eru reyndar ýmsar að nást fram, hefði þá að einhverju leyti fallið í þann farveg og átt þá útleið sem þessi lög gera ráð fyrir. Það hefði hins vegar ekki komið í staðinn fyrir þær umræður og þau mótmæli sem fram fóru en það hefði getað styrkt hreyfinguna og hún hefði þannig getað samsamað sig þjóðinni með skýrari hætti. Reyndar kom í ljós, þvert á það sem ýmsir hv. þingmenn hafa nánast grátið og kveinað yfir vikum saman, að þessi hreyfing studdist við meiri hluta landsmanna. Það kom í ljós í skoðanakönnunum sem um það voru haldnar.

Ég vil að lokum þakka fyrir að þetta frumvarp skuli komið fram og tel það mikilsvert. Ég spái því að það verði að lögum innan skamms þó að það verði e.t.v. ekki á þessu þingi sem á eftir að sitja aðeins skamma stund.