136. löggjafarþing — 85. fundur,  20. feb. 2009.

Seðlabanki Íslands.

280. mál
[16:33]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Í þeirri breytingartillögu sem við í minni hluta viðskiptanefndar leggjum fram er gert ráð fyrir rýmri menntunarkröfum en gert er ráð fyrir í breytingartillögum stjórnarmeirihlutans. Við leggjum áherslu á að orðalagið í ákvæðinu sé sambærilegt við löggjöf í seðlabönkum í öllum þeim löndum sem við höfum upplýsingar um þannig að ekki verði gerð krafa um tiltekna háskólamenntun heldur aðeins gerð krafa um háskólamenntun, víðtæka reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum.

Við teljum mikilvægt að þetta ákvæði sé opið og sé í samræmi við það sem gerist í löndunum í kringum okkur þótt víðar væri leitað. Ég bendi einnig á að þessi breyting okkar er í góðu samræmi við þær ábendingar sem komið hafa frá umsagnaraðilum, m.a. Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.