136. löggjafarþing — 87. fundur,  24. feb. 2009.

skuldir heimilanna.

[13:55]
Horfa

viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon):

Virðulegi forseti. Verið er að skoða ýmsar leiðir í þessum málum öllum saman, sumar reyndar ekki hjá ráðuneyti mínu heldur hjá dómsmálaráðuneytinu og reyndar er líka talsverð vinna í bönkunum og væntanlega sparisjóðunum.

Það er alveg rétt að þegar reynt hefur verið eftir hrun bankanna að leggja mat á þessar eignir, þ.e. lánasöfn sem tengjast íbúðalánum, hefur verið gert ráð fyrir því að þau innheimtist ekki að fullu þannig að í þeim skilningi er búið að afskrifa þau nú þegar. Þau voru eign bankanna sem hrundu en hafa nú verið færð, a.m.k. um tíma, yfir í nýju bankana og voru þau þá færð þar á milli með afskriftum.

Ég get hins vegar ekki fallist á að þess vegna sé svigrúm til að afskrifa sama hlutfall af þessum lánum gagnvart lántakendunum. Það byggir einfaldlega á því að þegar metið er hversu mikils virði svona lánasöfn eru er auðvitað gert ráð fyrir því að margir greiði lán sín að fullu til baka með vöxtum en einhverjir greiði þau ekki nema að hluta og að í sumum tilfellum innheimtist mjög lítið. Sem betur fer er það þannig að þótt margir eigi nú í erfiðleikum eiga það alls ekkert allir þannig að stór hluti þjóðarinnar getur staðið í skilum þótt stór hluti eigi líka í vandræðum með það. Ef lán væru afskrifuð, t.d. um 20%, væri þar með verið að rýra mjög eignir bankanna eða Íbúðalánasjóðs, ef búið væri að færa lánin þangað, og kostnaðurinn við það væri miklu meiri en hægt væri að réttlæta vegna þess að verið væri að fella líka niður lán þeirra sem geta og eiga ekki í neinum erfiðleikum með að greiða þau.

Ég verð því miður að lýsa (Forseti hringir.) því yfir að einhverjum öðrum leiðum verður að beita en þessari til að leysa vanda þeirra verst stöddu.