136. löggjafarþing — 88. fundur,  25. feb. 2009.

ljósleiðarastrengirnir Farice og Danice.

314. mál
[14:59]
Horfa

Björk Guðjónsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjandanum hv. þm. Ármanni Kr. Ólafssyni fyrir þessa fyrirspurn. Ég tel gríðarlega mikilvægt að þessir strengir verði lagðir vegna þeirra netþjónabúa sem áhugi er fyrir að reisa á Íslandi.

Ég veit að Verne Holding hefur sýnt áhuga á að byggja netþjónabú á Keflavíkurflugvelli sem er þegar komið af stað en hefur seinkað og því mun fylgja fjöldinn allur af atvinnutækifærum. Þess vegna tel ég, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra, það vera mjög mikilvægt að byggja netþjónabú um landið, og það eru nokkrir aðilar sem hafa sýnt áhuga á því (Forseti hringir.) og við það mun nýjum störfum í landinu fjölga verulega.