136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Icesave-nefndin.

[10:38]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég veit ekki hvort hv. fyrirspyrjandi er að bjóða sig fram í nefndina, ég skal taka það til góðlátlegrar skoðunar ef hv. þingmaður vill leggja okkur lið í þessu ákaflega erfiða verkefni.

Staðan er einfaldlega sú að við tökum við þessu verkefni nú í febrúarmánuði eins og fráfarandi ríkisstjórn skildi við það. Hlutverk okkar er að reyna að greiða úr þeim miklu ógöngum sem þetta mál hefur leitt yfir okkur og í það hefur núna verið skipuð samninganefnd, að mínu mati mjög vel mönnuð, undir forustu sendiherra okkar í Kaupmannahöfn og með þeim fulltrúum úr ráðuneytum og seðlabanka sem hafa með þessi mál að gera á sínu sviði. Henni til aðstoðar mun síðan verða fengið lið, væntanlega bæði innlendra og erlendra sérfræðinga, til að styrkja framgöngu okkar að þessu leyti eins og nokkur kostur er.

Það hefur ekki verið samið um neitt í þessum efnum, það liggur enginn samningur fyrir. Hitt er öllum ljóst, mikilvægi þess að viðræður geti haldið áfram og mönnum eru líka ljósar væntanlegar afleiðingar þess ef það yrði ekki. Ég hygg að hv. þingmaður þekki þetta nokkuð vel og hefur væntanlega í sínum flokki heyrt röksemdir fyrri ríkisstjórnar fyrir því að staðið yrði að málum eins og þar var ákveðið að gera.

Afstaða mín til þess hefur ekki breyst að það er harkalegt og ósanngjarnt að Ísland skuli ekki eiga þess kost að fá úrskurð mála sinna fyrir gerðardómi eða dómstólum, eins og við höfum átt fram að þessu, en sú er staðan. Fyrri ríkisstjórn ákvað að reyna ekki málshöfðun í Bretlandi og féll á tíma með það mál 7. janúar sl. Þannig tökum við við málinu og ætlum að gera okkar besta til að greiða úr því. Það er öllum ljóst að það er mikið í húfi og kannski hafa sjaldan verið sett í hendurnar á nokkurri samninganefnd á vegum íslenska ríkisins (Forseti hringir.) jafnafdrifarík mál og hér er verið að gera.