136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

stjórn bankakerfisins.

[10:54]
Horfa

Ármann Kr. Ólafsson (S):

Hæstv. forseti. Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar virðast vera til bráðabirgða og fæstar þeirra snúa að endurreisn íslenska efnahagslífsins, því miður. Enn eru ríkisbankarnir stjórnlausir og það sem verra er, sparisjóðunum er að blæða út fyrir framan augun á ríkisstjórninni, fyrir framan augun á hæstv. fjármálaráðherra. Ég hélt að við sem sitjum á Alþingi værum sammála því að það væri grundvallaratriði að endurreisa íslenska hagkerfið á sem stystum tíma. Ég veit ekki betur en að við séum líka öll sammála því að forsenda þess að koma bönkunum, sparisjóðunum og öðrum fjármálastofnunum fyrir vind á ný sé að við náum að reisa við íslensku heimilin, íslensku fyrirtækin.

Þann 11. febrúar, fyrir hálfum mánuði, fjallaði ég um stjórnleysi bankanna. Síðan þá hefur ekkert gerst. Þetta var í kjölfar þess að hæstv. forsætisráðherra hafði lýst yfir vantrausti út frá pólitískum forsendum á sitjandi bankaráðsformenn Kaupþings banka og Íslandsbanka sem nú heitir. Þeir eru báðir þekktir að heiðarleika, þessir menn, og mikilli þekkingu á íslensku viðskiptalífi. Þá var einnig skipt út bankaráðsformanni þriðja bankans, Landsbankans, en á öðrum forsendum þar sem hann langaði í bankastjórastólinn.

Eins og ég segi hefur síðan þá ekkert gerst að frátöldu klúðri hæstv. fjármálaráðherra (Gripið fram í.) á tilraun til skipunar bankaráðsformanns Kaupþings banka — haf þú þig rólegan, hæstv. ráðherra — (Gripið fram í.) fjármálaráðherra afsakar sig með því að hann hafi ekki ráðið í verkefnið vegna tímaskorts, réð ekki við að skipa bankaráðsformann á rúmum hálfum mánuði. Nú liggur það fyrir að bráðabirgðastjórn á að taka við stjórn Seðlabankans, það er virkilegt umhugsunarefni hvort ríkisstjórnin ræður við það verkefni, ríkisstjórn sem ekki réði við að skipa einn bankaráðsformann á rúmum hálfum mánuði en átti með réttu að skipa tvo.

Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra í fullri einlægni í ljósi alvarlegrar stöðu (Forseti hringir.) fjármálakerfisins og hagkerfisins í heild: Hvað ræður för hjá hæstv. ríkisstjórn þegar kemur að stjórn bankakerfisins? Snýst (Forseti hringir.) endurreisnin eingöngu um pólitískar bráðabirgðaráðningar? Er mönnum einhver alvara (Forseti hringir.) í því að ganga til raunverulegra aðgerða, hæstv. ráðherra?