136. löggjafarþing — 89. fundur,  26. feb. 2009.

Sementsverksmiðjan á Akranesi.

[11:02]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Við ræddum hér fyrr í fyrirspurnatímanum um atvinnumál og nauðsyn þess að standa vörð um og tryggja sem mesta atvinnu í landinu. Mér varð í því sambandi hugsað til ágæts fyrirtækis, Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Starfsmenn Sementsverksmiðjunnar hafa sent þingmönnum bréf þar sem minnt er á þá góðu framleiðslu sem þar er. Þetta er vel rekið fyrirtæki og hefur starfað í líklega meira en 50 ár og framleitt sement fyrir landsmenn.

Maður veltir því fyrir sér hvort ráðherrann sé á vaktinni varðandi það að standa vörð um innlend fyrirtæki sem framleiða innlenda vöru með innlendu vinnuafli. Þess er skemmst að minnast að við misstum skipaiðnaðinn úr landi vegna þess að honum var ekki sinnt. Hann var látinn drabbast niður og í þenslu misstum við hann að stórum hluta úr landi.

Í kreppuástandi getum við líka verið í sömu hættu ef ekki er staðinn vörður. Við verðum að efla og standa vörð um allt sem íslenskt er. Vel má vera að samkeppnissjónarmið séu mikilvæg, að samkeppni við innflutt sement sé mikilvæg, en enn mikilvægara er að standa vörð um innlend störf og innlenda framleiðslu.

Ég vil spyrja hæstv. iðnaðarráðherra hvort hann hafi leitt hugann að þessum fyrirtækjum, hvort hann hafi leitt hugann að stöðu Sementsverksmiðjunnar t.d. varðandi forgang að opinberum framkvæmdum við sölu sements. Við verðum að gera (Forseti hringir.) allt núna til að tryggja innlenda atvinnu.