Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni fyrir málefnalega ræðu. Ég tek undir þau sjónarmið sem komu fram í ræðu hv. þingmanns varðandi afskipti af þingfundum. Ég spyr hv. þingmann um afstöðu hans sjálfs í viðskiptanefnd vegna þess að hann gagnrýndi að þingfundir féllu niður á mánudaginn. Hann vísaði til þess þegar forsætisráðherra þjóðarinnar taldi sér sæma að mælast til þess við forseta Alþingis að þingfundir féllu niður. Hvað vill hann segja um það frekar?
Að öðru leyti vísar þingmaðurinn til þeirrar skýrslu sem kom fram í viðskiptanefnd, svokallaðrar Larosiere-skýrslu. (Gripið fram í.) Þar vísar hann í töluliði 170 og 171 í skýrslunni og gerir að umtalsefni í ræðu sinni. Af því tilefni vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji að þessir tveir töluliðir séu í samræmi við þá breytingartillögu sem meiri hlutinn flytur við frumvarpið og hvort þeir séu að hans mati eðlilegt tilefni til að flytja þá breytingartillögu. Er hún í samræmi við það sem kemur fram í B-kafla þar sem fjallað er um „Macro-prudential supervision, the case for reform“? Ég spyr hv. þingmann að gefnu tilefni hvort hann telji að breytingartillaga meiri hluta viðskiptanefndar sé í samræmi við niðurstöðu þessa kafla.