Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Jón Magnússon spurði mig út í afstöðu mína til þess að hæstv. forsætisráðherra hefði beint því til þingforseta að stöðva hér þing á mánudaginn. Nú skal ég ekkert fullyrða um hvort hún hafi beint þeim tilmælum. Ég veit bara akkúrat ekkert um það svo ég segi alveg eins og er.
En það að stöðva þingið — og ef það er af þessum ástæðum er það bara algerlega fáránlegt, ætla ég að leyfa mér að segja, og ein grófasta misbeiting á valdi sem sést hefur í sölum Alþingis og akkúrat dæmi um — ef þetta er rétt sem hv. þm. Jón Magnússon fullyrti — grófustu mismunun á því hvernig framkvæmdarvaldið leyfir sér að koma inn í störf Alþingis.
Svo að seinni spurningunni: Já, ég tel breytingartillöguna vera í fullu samræmi við einmitt þær tillögur sem nefndin leggur til að komi hér fram, í lið 171, að til þess að seðlabankarnir geti sinnt hlutverki sínu verði þeir að fá skýra og formlega heimild til að meta heildaráhættu í fjármálakerfinu og gefa út viðvaranir þegar þörf er á.
Tillaga meiri hlutans segir:
„Ef peningastefnunefnd metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógna fjármálakerfinu skal hún opinberlega gefa út viðvaranir þegar tilefni er til.“ Það hefði alveg mátt orða þetta: eða þegar þörf er á.