Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Komið er hér til lokaumræðu frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands sem hefur verið til umfjöllunar á vettvangi Alþingis undanfarnar vikur og tekið nokkrum breytingum í meðförum þingsins, ekki síst við 2. umr., en þá voru gerðar allmargar breytingartillögur sem viðskiptanefnd lagði til að yrðu gerðar á frumvarpinu. Voru flestar þeirra samþykktar með nokkuð miklum meiri hluta eða um 50 atkvæðum.
Ég vil í upphafi máls míns segja að ég tel að vinnan að frumvarpinu í meðförum viðskiptanefndar hafi verið vönduð og ítarleg. Ég tel ástæðu til að þakka viðskiptanefndinni, formanni hennar, hv. þm. Álfheiði Ingadóttur og öðrum nefndarmönnum, fyrir samviskusamlega og vel unnin störf við yfirferð á frumvarpinu. Ég tel að þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar og eru einnig til umfjöllunar núna, breytingartillaga frá meiri hluta nefndarinnar, séu til þess að gera frumvarpið enn betra.
Það hefur verið gagnrýnt einkum og sér í lagi af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins að frumvarpið hafi verið meingallað og óvandað þegar það kom hingað inn í þingið frá hæstv. forsætisráðherra. Ég er þeirrar skoðunar að frumvarpið sé ekki flókið í sjálfu sér. Það tekur ekki á öllum grundvallarþáttum í starfsemi Seðlabankans heldur tilteknum afmörkuðum atriðum og er þess vegna ekki flókið frumvarp. Það að Alþingi leyfi sér að gera allnokkrar breytingar og jafnvel þó að þær séu margar á frumvarpi þýðir ekki endilega að það hafi verið illa úr garði gert. Það getur einfaldlega þýtt það að önnur sjónarmið séu hjá alþingismönnum en komu fram við framlagningu málsins, þ.e. af hálfu hæstv. ráðherra sem flytur málið. Það er að sjálfsögðu ekkert óeðlilegt við það.
Við höfum oftlega á Alþingi einmitt talað um það að þingið sé valdalítið og máttlaust og taki við málum frá framkvæmdarvaldinu og afgreiði þau nánast eins og á færibandi. Það hefur verið gagnrýnt. Síðan gerist það að fram koma mál frá ríkisstjórn sem taka allnokkrum eða jafnvel verulegum breytingum í þingnefndum og þá er það gagnrýnt líka með þeim rökum að málin séu illa undirbúin. Hér rekst auðvitað hvað á annars horn í þessu efni.
Það er sjálfsagt mál að vanda vel til samningar lagafrumvarpa sem koma frá ríkisstjórninni og leggja í þau mikla vinnu og gera ítarlega grein fyrir því hvað þar býr að baki. En það er jafnsjálfsagt að Alþingi taki málin til ítarlegrar umfjöllunar og hafi sjálfstæða skoðun á því ef þau sjónarmið eru uppi á vettvangi þingsins eða viðkomandi þingnefndar að gera þurfi ákveðnar breytingar, m.a. í ljósi athugasemda og umsagna sem berast um þingmálið, þá er líka jafnsjálfsagt að gera það og um það þarf ekki að deila að mínu viti.
Ég ætla ekki að tala mikið meira um breytingartillögurnar sem voru gerðar við 2. umr., þær voru ræddar ítarlega þegar sú umræða fór fram, en ég ætla aðeins að minnast á þá breytingartillögu sem núna er lögð til af hálfu meiri hluta nefndarinnar. Hún byggir á því að nefndin fékk skýrslu sem unnin var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins undir forustu fyrrverandi framkvæmdastjóra Þróunarbanka Evrópu, Jacques de Larosiere, sem gerð var opinber í gær. Sú breytingartillaga sem meiri hlutinn leggur nú til byggir að einhverju leyti á afmörkuðum þætti úr þeirri skýrslu og gerir ráð fyrir því að, eins og segir, með leyfi forseta:
„Ef peningastefnunefnd metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógna fjármálakerfinu skal hún opinberlega gefa út viðvaranir þegar tilefni er til.“
Mér finnst vera dregin upp mjög svört mynd af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Ég hjó eftir því að hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson orðaði það svo að með þessu væri verið að skylda peningastefnunefndina til að lýsa því yfir að hér sé allt í kaldakoli. Ég er ósammála því viðhorfi vegna þess að hér er fyrst og fremst verið að tala um að peningastefnunefndin eigi að gefa út viðvaranir ef hún metur það svo. Ef hún telur tilefni til að vara við tilteknum þáttum sem ógni fjármálakerfinu eigi að láta vita af því. Þetta finnst mér vera í anda góðrar og gagnsærrar stjórnsýslu en vitaskuld mun peningastefnunefndin ekki gefa út yfirlýsingar sem munu síðan ógna fjármálastöðugleikanum. Það mun peningastefnunefndin ekki gera. Ef hún metur það svo að yfirlýsing eða viðvaranir muni í sjálfu sér leiða til þess að fjármálakerfið hrynji væri hún með slíkri yfirlýsingu að ógna fjármálastöðugleikanum sem hún á einmitt ekki að gera samkvæmt því sem segir í þessari grein. Mér finnst því hlutunum vera snúið nokkuð á haus.
Hvað varðar skýrslu Evrópusambandsins — menn kvarta yfir því í þessari umræðu að ekki hafi gefist mikill tími til að fara yfir hana — verðum við aðeins að gera okkur grein fyrir því hvers konar skjal og vinna þar er á ferðinni. Sú skýrsla fjallar ekki sérstaklega um starfsemi Seðlabankans og alls ekki Seðlabanka Íslands. Einhver sagði það, kannski í hálfkæringi, að í 80 blaðsíðna skýrslu væri hvergi að finna nafnið Davíð Oddsson til að mynda. En að öllu gamni slepptu fjallar sú skýrsla ekki sérstaklega um starfsemi eða lagaumgjörðina um Seðlabankann. Hún fjallar um miklu víðfeðmara svið og fjallar um það hvernig á að taka á afleiðingum fjármálakreppunnar og hvernig á að búa almenna umgjörð um fjármálamarkaðinn innan Evrópu og hvernig á að beita þjóðhagslegum tækjum í þessu samhengi, hvernig eftirlitsstofnanir eiga að virka og hvernig á að taka á málinu í hnattrænu samhengi. Þetta eru gríðarlega stór mál sem mjög eðlilegt er að rædd séu ítarlega í alþjóðlegu samhengi og á vettvangi þeirra alþjóðastofnana og alþjóðasamninga sem að þessum málum lúta en gefur ekki tilefni til þess að taka einstaka þætti og heimfæra yfir á lögin um Seðlabanka Íslands, sérstaklega ekki út frá því sem seðlabankafrumvarpið sem hér er til umfjöllunar gengur út frá, nema að frátöldu því atriði sem meiri hluti viðskiptanefndar leggur til um að víkka út eða hnykkja á öllu heldur verkefnum peningastefnunefndarinnar sem er svo fjallað um í seðlabankafrumvarpinu.
Þessi vinna nefndar Larosieres fer núna til mjög ítarlegrar umfjöllunar á vettvangi Evrópusambandsins. Ekki var gert ráð fyrir að framkvæmdastjóri Evrópusambandsins mundi bregðast við henni um leið og hún væri lögð fram, gert var ráð fyrir því að úr henni yrðu unnar einhverjar tillögur fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ráðherraráð og leiðtogaráð Evrópusambandsins. Verður það til umfjöllunar á fundum sem verða haldnir 19. og 20. mars og síðan 2. apríl. Það er mjög óvíst að á þeim tímapunkti verði einhverjar tilteknar aðgerðir tilbúnar til að fylgja því eftir sem skýrslan fjallar um. Ekki er óhugsandi að á grundvelli hennar muni framkvæmdastjórn Evrópusambandsins koma með tillögur um löggjöf sem mundi þá gilda um fjármálamarkaðinn í Evrópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu sem kæmi til umfjöllunar hér á næstu mánuðum og missirum og ólíklegt að það verði að einhverri sérstakri löggjöf fyrr en að alllöngum tíma liðnum. Þá hefði maður viljað spyrja: Eru þeir sem telja að enn þá lengri tíma þurfi til að fara yfir efni þessarar skýrslu sérstaklega og heimfæra hana eða innleiða efni úr henni inn í íslenska löggjöf þá þeirrar skoðunar að bíða eigi með þetta seðlabankafrumvarp þar til þeirri vinnu lýkur? Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þá værum við komin með þetta mál í allt annað samhengi og allt annan tímaramma og værum ekkert að tala um það á þessu þingi eða jafnvel ekki því næsta heldur inn í miklu lengri framtíð.
Ég tel því að málin séu slitin úr samhengi og fyrst og fremst eigi að einbeita sér að því að afgreiða þær breytingar á lögunum um Seðlabankann sem lagðar eru til í frumvarpinu vegna þess að við erum að fjalla um þetta í því íslenska samhengi að mikilvægt er að endurreisa og endurvekja traust á íslenskri fjármálastarfsemi, bankastarfsemi, peningamálastjórn og eftirlitsstarfseminni á þessu sviði. Það er ekki síst það sem þessu seðlabankafrumvarpi er ætlað að gera, að endurheimta traust í samfélaginu á þeirri mikilvægu stofnun sem Seðlabankinn er. Menn geta auðvitað endalaust velt því fyrir sér hvort verið sé að leggja í leiðangur til þess að skipta út einum seðlabankastjóra, tveimur eða þremur. Þetta snýst ekki um einstaklinga eða kennitölur einstaklinga sem hafa verið við störf í Seðlabankanum. Þetta snýst um að endurheimta og endurvekja það traust sem þarf að vera til staðar á þeirri mikilvægu stofnun. Ég held að það sé ekki nokkur maður sem heldur því fram að það traust sé til staðar eða hafi a.m.k. ekki beðið nokkra hnekki í kjölfar efnahagshrunsins. Það er því mjög mikilvægt skref sem við erum að taka með því að afgreiða frumvarpið í því efni.
Ég vil ekki lengja umræðuna, frú forseti, heldur einungis undirstrika að ég tel að viðskiptanefnd hafi unnið mjög gott starf. Hún hefur haft þetta mál til meðferðar núna í rúmar tvær vikur og farið ítarlega yfir efni frumvarpsins, fengið umsagnir og fengið fjölda gesta á sinn fund og tekið tillit til margra sjónarmiða, athugasemda og tillagna sem hafa komið fram í þeirri málsmeðferð. Sumar hefur Alþingi nú þegar samþykkt við 2. umr. og hér kemur ein tillaga til viðbótar til að hnykkja á verkefnum peningastefnunefndar sem ég tel að séu til bóta.
Ég verð að segja vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur fram úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins og með hliðsjón af þeirri breytingartillögu sem Sjálfstæðisflokkurinn gerir við 3. umr. að í raun finnst mér að ágreiningurinn við þetta frumvarp eða við meiri hlutann á Alþingi risti ekki mjög djúpt, vegna þess að eina breytingartillagan sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði við 2. umr. málsins laut að því hvaða menntunarkröfur ætti að gera til seðlabankastjórans, ekki um það hvort seðlabankastjórarnir ættu að vera einn eða þrír, ekki um hlutverk peningastefnunefndar eða tilurð hennar, heldur einungis að því hvaða menntunarkröfur ætti að gera til seðlabankastjóra. Aðrar breytingartillögur meiri hlutans í meginatriðum samþykktu þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Hér kemur núna breytingartillaga sem fjallar um það eitt að við skipan seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra í fyrsta sinn eftir gildistöku þessara laga þá eigi forsætisráðherra að leita staðfestingar Alþingis á skipan þeirra. Þetta er nú allur ágreiningurinn. Ég verð því að segja að mér finnst að verið sé að gera úlfalda úr mýflugu. Varðandi þessa breytingartillögu sérstaklega er kannski rétt að hafa það í huga að meiri hluti nefndarinnar lagði til breytingu við 2. umr. sem var samþykkt og felur það í sér að í 23. gr. seðlabankalaganna kemur nú ákvæði sem segir að við skipun í embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra skuli skipa sérstaka þriggja manna hæfnisnefnd til að fjalla um hæfi þeirra umsækjenda um þessar stöður þar sem samstarfsnefnd háskólastigsins, bankaráð Seðlabankans og síðan forsætisráðherra skipa hver sinn fulltrúa í hæfnisnefnd sem fjallar um umsækjendur og metur þá. Má því segja að þar sé komið inn faglegt ferli við ráðningu seðlabankastjóra, búið að setja það inn í frumvarpið, inn í lögin, sem ég tel mjög til bóta og þess vegna er þetta ákvæði sem hér er lagt til að komi inn til bráðabirgða algjörlega óþarft að mínu viti og mundi ekki bæta frumvarpið ef það yrði samþykkt.
Að öðru leyti, frú forseti, þakka ég fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram um þetta mikilvæga mál og vonast til þess að það verði afgreitt í góðri sátt að lokinni umræðu.